Skinfaxi - 01.12.1972, Blaðsíða 14
HÉRAÐSSAMBAND
SNÆFELLS- OG
HNAPPADALSSÝSLU
50 ÁRA
í nýútkomnu afmælisriti HSH segir
svo um tildrögin að stofnun sambands-
ins:
„Héraðssamband ungmennafélaga í
Snæfellsness- og Hnappadalssýsiu var
stofnað 24. sept. 1922 í samkomuhúsinu
að Fáskrúðarbakka í Miklaholtshreppi og
er því fimmtíu ára á þessu ári. Tildrög
stofnunarinnar voru þau, að fjórðungs-
samböndín voru lögð niður um og eftir
1920, og á síðasta fjórðungsþingi Vest-
firðingafjórðungs voru gerðar ráðstafan-
ir til að stofnuð væru héraðssambönd,
þar sem þau voru ekki til staðar, og mun
það hafa verið þetta fjórðungsþing, sem
skipaði þrjá menn hér í héraði vorið 1922
til að undirbúa og vinna að stofnun hér-
aðssambands, er næði yfir Snæfellsness-
og Hnappadalssýslu. Þessir þrír menn
voru: Guðmundur Illugason, þá í Yztu-
Görðum, Sveinbjöm Jónsson, Snorrastöð-
um og Bragi Jónsson, þá í Hofgörðum.“
Á stofnfundinum voru svo þessir sömu
menn kosnir í fyrstu stjórn héraðssam-
bandsins.
Núverandi stjórn HSH skipa: Jón Pét-
ursson formaður, Magndís Alexanders-
dóttir gjaldkeri, Jóhann Lárusson ritari,
Vilhjálmur Pétursson meðstjórnandi og
Þórður Gíslason meðstjórnandi.
I HSH eru þessi félög:
Umf. Staðarsveitar, stofnað 1912
Umf. Eldborg, Kolbeinsstaðahr., 1915
Umf. Helgafell, Helgafellssveit, 1919
Umf. Trausti, Breiðuvíkurhreppi, 1925
Umf. Þröstur, Skógaströnd, 1927
Umf. Víkingur, Ólafsvík, 1928
Umf. Reynir, Hellissandi, 1932
Umf. Grundfirðinga, 1933
Umf. Árroðinn, Eyjahreppi, 1936.
íþrf. Miklaholtshrepps, 1937
Umf. Snæfell, Stykkishólmi, 1938
14
SKINFAXI