Skinfaxi - 01.12.1972, Blaðsíða 21
NÆSTA LANDSMÓT
I UNDIRBÚNINGI
Rætt við Vilhjálm Einarsson,
formann UMSB
í tilefni sextugsafmælis Ungmenna-
sambands Borgarfjarðar átti Skinfaxi
stutt samtal við formann UMSB, Vil-
hjálm Einarsson skólastjóra í Reykholti.
— Hafið þið gert ykkur dagamun í
tilefni afmælisins.
— Já, afmælisins var sérstaklega
minnzt með hófi að Logalandi hinn 28.
apríl í vor. Þar hittust eldri og yngri ung-
mennafélagar úr héraðinu og rifjuðu upp
sögu sambandsins og sameiginlegar end-
urminningar. Þá gaf sambandið út af-
mælisrit undir umsjón Jóns A. Guð-
mundssonar. I ritinu er sérstaklega rak-
Vilhjálmur Einarsson.
inn annáll síðustu tíu ára í sögu UMSB,
en í afmælisriti fyrir tíu árum var rakin
saga fyrstu 50 áranna.
— Hvernig er stjórn sambandsins
skipulögð?
— UMSB hefur 5 manna stjórn. Að
hinum ýmsu málaflokkum starfa svo sér-
stakar nefndir, svo sem frjálsíþrótta-
nefnd, handknattleiksnefnd, knattspyrnu-
nefnd, körfuknattleiksnefnd, badminton-
nefnd, trimmnefnd, starfsíþróttanefnd,
Myndin er frá
„Vorleikjunum"
að Leirárskóla
fyrir nokkrum
árum, en það er
f jölmennt
iþróttamót ungl-
inga, þar sem
keppt er í
aldursflokkum.
SKINFAXI
21