Skinfaxi - 01.12.1972, Blaðsíða 25
um dæmalausa óvirðingu. Hokkílið tók
við silfurverðlaunum með ólund og
skrípalátum. Bæði þessi silfurlið töldu sig
fyrirfram sjálfkjörin gulllið og risu ekki
undir ósigri. Silfurmaður í stangarstökki
neitaði að taka í hönd sigurvegarans.
Sem sagt: úr því að ég sigraði ekki, er
mér fjandans sama um þetta allt saman
og ber enga virðingu fyrir því. Ekkert
nema sigur nægir mér. Þarna er ljóslif-
andi ávöxtur stórveldamikilmennsku og
þjóðarrembings.
Annað og alvarlegra stig jjessarar öf-
ugþróunar eru svo pólitísk ofbeldisverk
og manndráp, sem færð eru inn á hinn
mikla auglýsingavettvang Olympíuleik-
anna, en það er ekki hlutverk þessarar
greinar að fjalla um það, enda öllum
kunnugt.
Ýmsar tillögur hafa komið fram í því
skyni að bæta úr þessu ófremdarástandi.
Það sem liggur í augum uppi og sjálf-
sagt virðist vera að breyta, er verðlauna-
kapphlaupið. Það verður skilyrðislaust
að hætta hinni umfangsmiklu verðlauna-
afhendingu, þar sem dekrað er við fár-
Guðjón
Guðmundsson
stóð sig með
miklum ágætum
á olympiuleik-
unum og setti
Norðurlandamet
1 200 m.
bringusundi —
2:32,4 mín.
ánlegan þjóðarrembing í ójöfnum leik.
Stórveldin hafa alltaf vinninginn þegar á
heildina er litið. Fánar þeirra eru látnir
drottna yfir hinum og þjóðsöngvar þeirra
eru blásnir í síbylju yfir hinum smáu sem
hirða molana. Þessar væmnu verðlauna-
athafnir eiga ekkert skylt við heilbrigðan
þjóðarmetnað og eru auk þess gjörsam-
lega óþarfar frá sjónarmiði íþróttanna.
Þáttur Islands
Þátttakendur Islands á Olympíuleik-
unum hafa aldrei verið jafnmargir og
Bjarní Stefánsson varð
4. i sínum riðli i und-
anrásum 400 m. hlaups-
ins á nýju íslands-
meti — 46,76 sek. Það
nægði honum til að
komast i milliriðil, þar
sem hann varð 6. —
Myndin sýnir Bjarna í
keppninni á olympiu-
leikumun.
SKINFAXI
25