Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.12.1972, Page 16

Skinfaxi - 01.12.1972, Page 16
Guðmundur Illugason, fyrsti formaður HSH. lagði skjalasafn sambandsins o. fl. Okkur var kleift að ráða starfsmann af því að sveitarfélögin höfðu skilning á þessu og lögðu okkur lið. Nú held ég að öllum hljóti að vera Ijóst að fastur starfsmaður allt árið er höfuðnauðsyn fyrir héraðið. — Er starf hinna einstöku félaga mis- jafnt? — Það er auðvitað ýmis munur á því og breytilegur frá einum tíma til annars. En í sumar reyndum við nýja skipulags- hætti sem gáfust mjög vel. Við fólum hverju einstöku félagi sérstök verkefni til að vinna að, svo sem undirbúning og framkvæmd héraðsmóta í ýmsum íþrótta- greinum, skák og sumarbúðastarfi. Allir höfðu mikilvæg verkefni, og þeirra metn- aður var að leysa þau vel af hendi með stuðningi héraðssambandsins. — Hvemig er íþróttaaðstaðan? — Á nokkrum stöðum er húsnæði sem nota má til íþróttaiðkana á vetrum. Sum félagsheimili má líka nýta fyrir íþróttir, og það er gert t. d. á Hellissandi. Vellir eru helzt malar-knattspymuvellir í þorpunum. Á Breiðabliki í Miklaholts- hreppi er grasvöllur og þar hefur frjáls- íþróttakeppnin oftast verið. Mannvirkin mættu batna til muna, en ég tel meira varða að fá góða leiðbeinendur sem geta vakið áhuga unglinganna fyrir íþróttum og félagsstarfi og unnið með þeim. Ef það tekst, má segja að allar aðstæður séu nógu góðar, þótt auðvitað þurfi stöðugt að vinna að íþróttamann- virkjagerð. — Er íþróttalífið fjölskrúðugt? — Það er talsverð gróska í íþróttum. Félagsheimilið Breiða- blik i Miklaholtshreppi er einn helzti sam- komustaður i héraðinu. Þar er einnig grasvöll- ur og þar eru frjáls- iþróttamót HSH oftast haidin. 16 SKINFAXl

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.