Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.12.1972, Síða 17

Skinfaxi - 01.12.1972, Síða 17
Snæfellingar keppa ár- lega við Héraðssam- bandið Skarphéðin í frjálsum iþróttum, og hafa slik mót verið haldin siðan 1965. — Myndin sýnir keppnis- lið HSH árið 1968. HSH hefur lengst af átt góðan efnivið, sérstaklega börn og unglinga. En því miður hefur skort leiðbeinendur og kraft til að fá fólkið almennt til að halda á- fram. Til að efla flokkaíþróttimar væri aukin samvinna ungmennafélaganna æskileg, t. d. gætu félögin í þorpunum undir Jökli myndað mjög öflugt knatt- spymulið, enda er þar um 2000 manna byggð og stutt á milli þorpanna. í ár héldum við liéraðsmót í mörgum grein- um: í frjálsíþróttum og sundi vom mót bæði fyrir fullorðna og unglinga, og í körfuknattleik og knattspyrnu er keppt í aldursflokkum. Badminton hefur löngum verið iðkað í Stykkishólmi, þótt heldur hafi dregið úr því í bili. — Hvar haldið þið héraðsmótin? — Við tókum upp þá stefnu í ár að halda héraðsmótin á ýmsum stöðum og ekki á sama stað hvert mót ár eftir ár. Þetta er í samræmi við dreifingu verk- efna til ungmennafélaganna, og þetta verður líka til þess að reka á eftir fram- kvæmdum við íþróttamannvirki á hinum ýmsu stöðum. — Eruð þið ekki í fjárþröng eins og flestir aðrir? — Við höfum verið svo lánsamir að ná góðu samstarfi við sveitarfélögin, og þau hafa stutt héraðssambandið fjár- hagslega. Árangur starfs héraðssamband- anna er líka mjög undir því kominn að forystumenn sveitarfélaganna skilji að ungmennafélögin eru virkasti aðilinn í frjálsu félagsstarfi æskufólks og ná bezt til unglinganna. Reynsla okkar af starfs- manni í sumar sýnir líka að héraðssam- bandið þarf að hafa framkvæmdastjóra allt árið. Slíkt væri líka bæði fjárhags- legur og félagslegur ávinningur fyrir æskulðsstarfið í sveitarfélgunum. Mér er engin launung á því að fjárhagur HSH er góður, en það er ekki bara stuðningi sveitarfélaganna að þakka, heldur höfum við eflzt af eigin starfi. Það eru því öll skilyrði fyrir hendi til þess að sambandið vaxi og dafni áfram. SKINFAXI 17

x

Skinfaxi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.