Skinfaxi - 01.04.1985, Blaðsíða 5
Ingimar J. Kristjánsson
Umí. Gretti 8 ára
Ertu búinn að stunda sund
lengi?
Já, svolítið.
Hefurðu keppt mikið?
Já, á fimm mótum, og ég á tvö
brons og eitt gull.
Hvað vannstu mikið í dag?
Bara eitt brons í 50 m. bringu-
sundi.
Hvert er uppáhalds sundið þitt?
Bringusund, en ég keppi líka í
skriðsundi. Ég lærði að sunda
þegar ég var 7 ára.
Er góð laug heima hjá þér á
Flateyri?
Já! hún er svipuð og hérna.
Æfirðu oft í viku?
Ég æfi sund tvisvar í viku. Svo
er ég líka í fótbolta, og keppi um
Umf. Gretti.
Þekkir þú blaðið Skinfaxa?
Nei, aldrei séð það.
Ætlarðu að æfa sund áfram?
Já, og reyna að verða góður.
Sund er
heilsubót
Hvert er uppáhalds sundið þitt?
Skriðsund er lang skemmtileg-
ast.
Ertu búinn að fá marga verð-
launapeninga?
Já! og svo vann ég einn í dag í
skriðsundi, fékk brons.
En áttu engan gullpening?
Jú, ég held að þeir séu tíu.
Ertu líka í fótbolta?
Nei, bara í sundi.
Ætlarðu að œfa sund áfram?
Já.
Hvað ætlar þú nú að verða er
þú verður eldri?
Leikari eins og Halli og Laddi.
Kannast þú við Skinfaxa?
Nei! Kemur mynd af mér í því
næst?
Já.
Anna K. Gunnarsdóttii
Umí. Gretti 9 ára.
Hvenær byrjaðir þú að œfa
sund?
Þegar ég var 7 ára.
Hvað æfir þú oft í viku?
Þrisvar.
Hvert er uppáhalds sundið þitt?
Flugsund er skemmtilegast.
Erna Jónsdóttii
UMFB 9 ára
Hefurðu æft sund lengi?
Síðan ég var 7 ára.
Hvert er uppáhalds sundið þitt?
Bringusund og skriðsund eru
lang skemmtilegust.
Hefurðu unnið til verðlauna?
Já, ég á 10 verðlaunapeninga, 6
gull, 3 silfur og 1 brons.
Fékkstu einhver í dag?
Já, eitt gull.
Ertu í fleiri íþróttum?
Nei, bara í sundi.
Ætlarðu að halda því áfram?
Já.
Þekkir þú Skinfaxa?
Nei.
Benedikt Sigurósson
UMFB 10 ára
Ertþú búinn að æfasund lengi?
í eitt ár.
SKINFAXI
5