Skinfaxi - 01.04.1985, Síða 9
Ei ísland
seglbretta
land?
Þessi íþrótt er mjög ung hér á
landi og ekki margir sem stunda
hana enn sem komið er, en á ef-
laust eftir að verða vinsæl og út-
breidd. Því allar aðstæður hér á
landi eru hinar bestu til að stunda
þessa íþrótt, nægur sjór eða vötn
og ekki þarf að kvarta yfir að
vind vanti. Upphaf þessarar
íþróttar hér á landi má að miklu
leyti rekja til þess að hingað kom
Austurríkismaður að nafni Rudi
Knapp árið 1983 til að kenna á
skíði í Bláfjöllum. Hann hafði
seglbretti með sér og skrapp þeg-
ar hann hafði tíma til og æfði sig.
Upp úr því fór áhugi manna hér
að vakna til að prófa þessa íþrótt.
Er talið að nú séu um 70 seglbretti
Svoncr á aö gera þetta.
til víðsvegar um landið. Stofn-
kostnaður við þessa íþrótt er um
37.000 kr. þ.e. seglbretti og þurr-
búningur, og er þá átt við mjög
góðan útbúnað, en eflaust er
hægt að fá eitthvað ódýrara.
Margir óttast að það sé of kalt hér
til að stunda þessa íþrótt, en sá
ótti er ástæðulaus þar sem þurr-
gallinn er það hlýr og þéttur. Sem
sagt ný og spennandi íþrótt sem
vert er að prófa. Hér á eftir er skrá
yfir öll mót sumarsins.
19. maí
25. mai
15. júní
6. júlí
27. júlí
3.-5. ág.
16.-18. ág.
5. okt.
Brettam. Seltj.nesi
Brettam. Akureyri
Brettam. Fossv.
Brettam. Hafnarfj.
Brettam. Akureyr.
Brettam. Laugarv.
Brettam. Akureyr.
Brettam. Fossv.
LEIKLIST
Leikhópurinn.
Leikdeild Umf. Möðruvalla-
sóknar hefur sýnt gamanleikinn
„Morgunverður í rúmið“ að und-
anförnu, alls 12 sinnum. Átta sýn-
ingar voru í félagsheimilinu
Freyjulundi Arnarneshreppi,
tvær sýningar annars staðar í
Eyjafirði og tvær í S-Þingeyjar-
sýslu. Aðsókn var oftast góð og
leiknum var hvarvetna vel tekið.
Leikstjóri var Ari. H. Jósavins-
son og Þráinn Karlsson aðstoðaði
við uppsetningu leiksins.
Leikendur taldir f.v. fremri röð:
Brynjar Ragnarsson, Ásta Ferd-
inandsdóttir, Hafdís Bjarnadótt-
ir, Eygló Jóhannesdóttir og Jósa-
vin Arason. Aftari röð f.v.: Hauk-
ur Steinbergsson hvíslari, Árni
Magnússon, Pétur Þórarinsson,
Jónas Bjarnason og Ragnar
Brynjarsson.
SKINFAXI
9