Skinfaxi - 01.04.1985, Síða 13
Landsmót
1987
Hinn 7. febrúar s.l. héldu þeir
Pálmi Gíslason, Þóroddur
Jóhannsson og Sigurður Geirdal
frá UMFÍ, fund með forustu-
mönnum HSÞ og fleirum í sam-
bandi við undirbúning 19. Lands-
mót UMFI, sem haldið verður á
Húsavík árið 1987.
Hér á myndinni sjást nokkrir
fundarmenn virða fyrir sér upp-
drátt af væntanlegu mótssvæði.
Taldir f.v. Bjarni Þór bæjartækni-
fræðingur, Vilhjálmur Pálsson,
Kristján Yngvason, Arngrímur
Geirsson, Þormóður Ásvaldsson,
Sigurður Geirdal og Pálmi Gísla-
son.
Hluti fundarmanna djúpt hugsi.
Aímœli
H.S.S.
Á síðasta ári varð H.S.S. fjöru-
tíu ára og samdi Ingimundur Ingi-
marsson á Svanshóli ljóð að því
tilefni. Hann sendi Skinfaxa ljóð-
ið með þeirri ósk að það yrði birt
í blaðinu.
Var það meira en velkomið að
birta það og er ljóðið hér fyrir
neðan. Einnig sendi Ingimundur
grein um glímuiðkun sem einnig
er hér í blaðinu. Skinfaxi þakkar
Ingimundi kærlega fyrir sending-
una og vonast til að heyra meira
frá honum.
Héraðssamband Strandamanna
(H.S.S.) 40 ára 19. nóv. 1984.
Flutt í afmælishófinu.
Fertugum reynist oft framtíðin björt
og fátt sem að skyldi hræðast
því samhugur styrkist svo undra ört
og ástæðulaust að mæðast.
Upp, upp skal merkið, og óskum þess
að auðnan þér fylgi H.S.S.
Styðjum hvern þann er kýs sér að
kroppinn þjálfa og æfa,
manndóminn auka meira en það
sem meðal afrekum hæfa.
í heilbrigðum líkama hraust er sál.
Hver einn skilur það einfalda mál.
Þótt nepji stundum og næði kalt
við njótum oft friðsæld og hlýju.
Munum kjörorðið: „ísland allt“,
og eflum í framkvæmd að nýju.
Föðurland virðum og móðurmál,
magnist sú eigind í hverri sál.
Ingimundur á Svanshóli.
Veistu
svariö?
(svöx)
1. Barn náttúrunnar (kom út þeg-
ar hann var 17 ára).
2. Árið 1662 (Kópavogssamning-
urinn).
3. Hvannadalshnjúkur.
4. Thomas Alfa Edison.
5. Í Kína (um 70% eru taldir tala
það).
6. Demantsbrúðkaup.
7. Músarindill.
8. Risafura (Mammúttré).
9. NÍ1 (6.689 km.).
10. Dökkur — svartur.
SKINFAXI
13