Skinfaxi - 01.04.1985, Page 33
Stjaman í 2. 0. kvenna.
H§b * "*■ Lfc-|
' m ... "
1
4] L!>';
1
i}' •'
iM| * • t
Handknattleikur
Nú er nýlokið íslandsmóti
yngri flokka í handknattleik. Og
þar var árangur ungmennafélaga
mjög góður, en þau léku til úrslita
í sex flokkum af átta og unnu
fimm. Þau félög sem stóðu sig
svona vel eru Afturelding, Grótta
og Stjarnan. Þessi félög hafa í
mörg ár átt mjög góða flokka í
handknattleik. í 2. fl. kvenna
sigraði Stjarnan KR í úrslitaleik
10—9. Grótta sigraði í 3. fl.
kvenna vann Stjörnuna 3—2 í úr-
slitaleik. Grótta sigraði einnig í 4.
fl. kvenna. Þá lék Grótta til úr-
slita í 3. fl. karla við FH en tapaði
9—8. Stjarnansigraðií4. fl. karla
vann Víking 10—4 í úrslitaleik.
Og í 5. fl. karla sigraði Aftureld-
ing Val í úrslitum 6—5. Þannig að
þrjú ungmennafélög urðu ís-
landsmeistarar í handknattleik
yngri flokka, en öll þessi félög eru
innan UMSK. Skinfaxi óskar
þeim til hamingju með þennan
góða árangur, og hér á síðunni
eru myndir af þessum nýbökuðu
íslandsmeisturum.
Srótta í 3. fl. kvenna.
SKINFAXI
33