Skinfaxi - 01.02.1988, Page 3
Efnið
Einar Vilhjálmsson er
líkast til að búa sig undir síðustu
Ólympíuleika sem hann tekur þátt
í. Þetta kemur fram í stóm viðtali
við hann í þessu tölublaði Skin-
faxa. Einar er geysilega agaðar
keppnismaður og það kemur greini
lega fram í viðtalinu að hann er
spjótkastari á heimsmælikvarða. I
viðtalinu segir Einar frá ýmsum
atvikum á ferli sínum, m.a. því
þegar spjótinuvarbreyttog hversu
víðtækar afleiðingamar urðu fyrir
hannogaðraspjótkastara. Hann er
nú kominn til Bandarikjanna til
æfinga eins og svo til allir fremstu
frjálsíþróttamenn okkar.
Bls. 8-14.
Myndir af Einari á forsíðu og
bls. 8; Gunnar Sverrisson.
Mynd, Brynjar Gauti
Afrekaskrá UMFI 1987
í fijálsum íþróttum er nú í Skinfaxa
samkvæmt venju. Affekaskráin
er, eins og í fyrra, í umsjá Jóns
Sævars Þórðarsonar, fijálsíþrótta-
þjálfara. Jón Sævar segir framfarir
einkenna afrekaskrá síðasta árs.
En hann bendir einnig á að það fólk
sem er í efstu sætum listanna hafi
æft í fjölda ára og víða sé farið að
gæta stöðnunar. BIS. 24-33.
UV'M'
415265
I: ' ^
Hvað gerir það að einu félagi
gengur betur en öðru að afla fjár
til starfseminnar? Spurningar
sem þessar koma oft upp í
hugann. Hafsteinn Óskarsson fer
ofan í þessi mál á fcílS 1 Ó~20
Skinfaxi
3