Skinfaxi - 01.04.1989, Side 7
Molar
Frá Landsmóti UMFÍ á Laugarvatni 1956. Héraðssambandið Skarphéðinn
hefur sent inn umsókn vegna Landsmótshalds 1996 og nefnt Laugarvatn sem
mögulegan Landsmótsstað.
Landsmót 1993
Eftir að Sauðárkróksbær féll frá því að halda Landsmót UMFÍ árið 1993 er
allt opið með hvar það veður haldið. Og nú hafa Skarphéðinsmenn formlega
sótt um að halda Landsmótið 1993. Þeir nefna annað hvort Selfoss eða
Laugarvatn. Laugarvatn nefna þeir sem fyrri kost, sérstaklega þar sem þar er
nú unnið hörðum höndum að því að að skipuleggja uppbyggingu
íþróttamiðstöðvar íslands.
Á Laugarvatni hefur einu sinni áður verið haldið Landsmót
ungmennafélaganna. Það var í byrjun júlí, 1965, í sól og sumaryl. Mótiðsóttu
vel yfir 20 þúsund manns og verður það sjálfsagt flestum ógleymanlegt sem
þangaðkomu. Enþaðerufleiri semíhugaLandsmótshald 1993. Þeirraámeðal
er Ungmennasamband Borgarfjarðar. UMSB hefur þegar sótt um að halda
mótið 1996. Þegar þetta er ritað eru haldnir fundir með viðkomandi aðilum til
að athuga þann möguleika að halda mótið 1993.
Meltingartruflanir í kerfinu
Eins og lesendur Skinfaxa muna kannski upplýsti íris Grönfeldt í viðtali í
síðasta tölublaði síðasta árs að mögulegt væri að hún og kannski fleiri
frjálsíþróttamenn færu í æfingabúðir í A-Þýskalandi. Þegar til átti að taka varð
niðurstaðan úr því máli neikvæð. Svar barst um þetta á nýju ári á þá leið að þar
sem íþróttasambönd íslands og A-Þýskalands hefðu hingað til ekki aft nein
samskipti sín á milli, væri heimsókn íslenskrafrjálsíþróttamannaekki möguleg.
Eins og stendur eru því ekki líkur á að úr þessum samskiptum verði. Upphafið
að þessu var hins vegar á Ólympíuleikunum í Seoul þegar íþróttamenn og
þjálfarar ræddu saman og lýstu gagnkvæmum áhuga á einhverjum samskiptum.
Meltingartruflanir í kerfinu, myndu sjálfsagt einhverjir kalla þetta.
Ytri-Skál en ekki Ystafell
íþróttahús
á Hólmavík
Hólmavíkurbúar sjá fram á bjartari
tíð í íþróttahússmálum en verið hefur.
Undanfarin ár hefur verið þar vont
ástand. HSS menn hafa beitt sér fyrir
breytinguáþessummálum. Ásíðasta
ársþingi Héraðssambands
Strandamanna var samþykkt
eftirfarandi ályktun: „43. ársþing
H SS... samþykkir að skora á stjóm völd
að bæta íþróttaaðstöðuna við
Grunnskóla Hólmavíkur og hefja
framkvæmd á íþróttahúsi.”
í dag er kominn grunnur að
félagsheimili Hólmvíkinga og á
bráðlega að halda áfram
framkvæmdum þar. Nú hefur tekist
að fá hreppsnefnd Hólmavíkur til að
gera þá breytingu á fyrirhuguðu
félagsheimili að þar verði rými fyrir
æfingar íkörfubolta, blaki, badminton
ogfleiri boltaleikjum semkrefjastekki
meira rýmis en sem nemur einum
körfuknattleiksvelli, þ.e. 14x25
metrum. Málunumbjargaðfyrirhorn.
Hefur páfi
Friöarhlaupiö ?
Friðarhlaup, svipað því sem var fyrir
2 árum verður um allt land í sumar.
Fyrirhugað er að það hefjist 4, júní og
ljúki þann 25. sama mánaðar.
Þegar þetta er skrifað er unnið að því
að fá smþykki fyrir því að páfi hefji
Friðarhlaupið í heimsókns sinni
hingað til lands í júní. Það yrði þá á
Þingvöllum en þar verðursameiginleg
messa kaþólskra og lútherskra 3. júní.
í síðasta Friðarhlaupi kom í ljós að
2 vikur til hlaupa var of skammur
tími. Skipuleggjendur, Sri Chinmoy
hópurinn svonefndi, í samráði við ISI
og UMFÍ, hafa lært heilmikið frá því
í síðasta hlaupi og því má búast við
góðri skipulagningu að þessu sinni.
En hlaupið heppnast ekki vel nema
með góðri samvinnu við ungmenna-
og íþróttafélög um allt land. Félög og
sambönd hafa þegar fengið sent bréf
um framkvæmd hlaupsins og
undirbúningur er á lokasprettinum.
Þá er bara að hvetja alla til að vera
með.
Það varð dálítill misskilningur í
efnismeðferð í síðasta blaði Skinfaxa.
Þá var hér kynntur sá merki maður
Aðalsteinn Sigmundsson, sagt frá
uppruna hans og rakin atriði úr litríkri
æfi hans. Rangt var sagt að systir
hans, Jóhanna Sigmundsdóttir, byggi
á Ystafelli. Hún býrá Ytri Leikskálaá
í Ljósavatnshreppi, S-Þingeyjarsýslu
eða Ytri-Skál eins og bærinn eroftast
nefndur fyrir norðan. Beðist er
velvirðingar á mistökunum.
Skinfaxi
7