Skinfaxi - 01.04.1989, Blaðsíða 10
Knattspyrna
Útskýring á
stigaútreikningi
Skinfaxalista
í töflunni hér að ai’tan er aðeins
tekið tíllit lii þeirra liða sem hafa
yngri flokka í fslandsmóti (önnur
mót eru ekki tekin inn í þessa
töflu) svo og félög sem hafa lið í 1.
2. og 3. deild. Forsendumar eru
þær að lið í deildakeppni fá stig
eftir frammistöðu í fslandsmótí
ársins áður. Þannig fær 3. lið í 1.
deild 3 stig, 3, lið í 2. deild for 13
stig (þ.e. 13. besta lið á landinu).
9.liðí I.deildfær 11 stigenefsta
lið í annarri deild fær 9 stig. (Því
færri stig, því betra.)
I yngri flokkum telst A riðill
samsvara 1. deild í meistaraflokki.
B riðill er þá 2. deild og svo
fraravegis. Landsbyggðarriðlamir
eru undantekningfráþessarireglu.
Norðurlandsríðill telst vera 2.
deildarstyrkleiki en aðrir
landsbyggðarriðlar 3. deildar-
styrkleiki. Fjögur efstu sætin í
úrslitum hafa meira vægi heldur
en úrslit í riðlum ef það hækkar
viðkomandi félög. Sigurlið f B
riðli getur því fengið 1 til 4 stig ef
það verður meðal fjögurra efstu
liða í úrslítum fslandsmótsins.
Guðni Bergsson, hinn geysisterki varnarmaður Valsmanna er ekki lengur í
varnarmúr Hlíðarendaliðsins. Valsmenn hafa fengið mikinn liðsstyrk íþeim
Heimi Karlssyni og Lárusi Guðmundssyni en engan af sama styrkleika og
Guðni í vörnina. DV mynd, e.j.
yngri flokkum kvenna (2. og 3.fl).
Sú staðreynd að meistaraflokkur
KR lenti í 4. sæti Islandsmótsins í
fyrra þótti mjög vont mál. Nú eru að
verða kynslóðaskipti í meistara-
flokknum og þá er spumingin þessi:
Hafa strákarnir og forystumennirnir
þolinmæði til að bíða eftir að þeir
blómstri? Það má t.d. spyrja hvort
þeir hefðu í raun og veru gott af því að
verða Islandsmeistarar á næsta ári?
Það er ekki óeðlilegt að segja sem svo
að ungu mennimir sem eru að koma
upp í meistaraflokk karla þurfi tíma
til að venjast þeirri keppni.
2. og 3. sætið
Fram og Valur eru með mjög sterk
lið í meistaraflokki. Fram var í efsta
sæti Skinfaxalistans í fyrra. Þessi
félög hafa í ár og á síðasta ári verið að
fá menn erlendis frá og úr öðrum
liðum. Nefna má Sævar Jónsson,
Tryggva Gunnarsson, Atla
Eðvaldsson, Ragnar Margeirsson,
Pétur Arnþórsson og Kristján Jónsson.
Einnig Ormar Örlygsson og Birki
Kristinsson að norðan. Stein
Steinsson og Pétur Ormslev. Þetta
eru menn með reynslu sem skapa
Litli markakóngur KR. Andri
Sigþórsson hlaut þennan titil ífyrra.
Hann skoraði flest mörk leikmanna í
5. og ó.flokki. Lék þá með háðum
flokkum. KR mynd.
10
Skinfaxi