Skinfaxi - 01.04.1989, Blaðsíða 12
Knattspyrna
Frá Tommamótinu í Vestmannaeyjum á síðastasumri. Það er Eiður Smári Guðjohnsen,
sonur Arnórs, sem hér hefur leikið á markmann Valsmanna og skorar í autt markið.
Tommamótið er ekki síður en íslandsmótið mikilvœgtfyrir hin yngstu . DV mynd.
festu og stöðugleika sem
lið þurfa að hafa í topp-
baráttunni.
Fram stendur í raun vel að
vígi á listanum. Þeir unnu
Islandsmótið í meistara-
flokki, voru í 2. sæti í 3.
flokki (1. sæti í A riðli) á
Islandsmótinu. Þáurðuþeir
í 2. sæti í 4. flokki. Það
dregur þá hins vegar niður í
stigum á listanum að 2.
flokkur félagsins féll um
deild og 5. flokkur varð í 7.
sæti á íslandsmótinu.
Nokkra athygli vekur
slæmur árangur 2. flokks.
Ein skýring er ef til vill
reynsluleysi, líkt og hjá 3.
flokki KRinga. Flestir
drengjanna voru á 1. ári af
þremur í 2. flokki. Þessir
sömu drengir urðu hins
vegar Islandsmeistarar árið
á undan (’87), þá í 3. flokki.
Það verður því spennandi
að fylgjast með þessum
efnilega flokki í sumar.
Valur átti 3 flokka af 5 í
efstu sætum riðlanna á
Islandsmótinu og meistara-
Pétur Arnþórsson, Fram, í baráttu
við Sigurð Björgvinsson, IBK, á
Islandsmótinu í fyrra.
flokkurinnerBikamieistari.
2. flokkur félagsins lenti í
2. sæti Islandsmótsins og
eru margir á því að þessir
drengir hreppi Islands-
meistaratitilinn í ár. 3.
flokkurinn lenti í 4. sæti (í
sínum riðli) og4. flokkurinn
í 8. sæti í sínum riðli. 5.
flokkurinn lenti síðan í 5.
sæti í Islandsmótinu (3. sæti
í sínum riðli).
Þessi staða sýnir vissan
stöðugleika hjá félaginu,
árangur er nokkuð jafn
þegar á heildina er litið.
Meistaraflokkur Valsfékk
í fyrra mikinn liðsstyrk með
þeim Atla Eðvalds og
Sævari Jóns. Nú hafa þeir
hins vegar misst lykilmann,
Guðna Bergsson, auk þess
sjá þeir á eftir Hilmari
Sighvatssyni og Tryggva
Gunnarssyni. Þettajafnast
kannski upp á þeim Heimi
Karlssyni og Lárusi
Guðmundssyni. Þarna eru
hins vegar miklar breyt-
ingar og sumarið verður
forvitnilegt. Spurningin
12
Skinfaxi