Skinfaxi - 01.04.1989, Blaðsíða 18
Knattspyrna
Landslið Kuwait. Ýmis liðfrá Afríku og Asíu hafa komið á óvart og náð góðum
árangri á alþjóðamótum undanfarinna ára.
-Hvenær þeir áttu að snúa sér og
að skjóta.
-Hvenær þeir áttu að halda
boltanum.
-Hvenær þeir áttu að draga sig
inn á völlinn og opna svæði fyrir
kantanna eða fara sjálfir út á
kantana.
-Hvernig þeir áttu að snúa á
andstæðinginn til að skapa pláss
fyrir meðspilara.
Markmennimir.
I Seoul kom það enn einu sinni í ljós
hversu mikil væg markvarslan er þegar
komið er í þennan gæðaflokk.
Það var ekki tilviljun að fjórir bestu
markmenn keppninnar komust í
undanúrslitmeðsínumliðum. Þaðað
komast í undanúrslitin eða þurfa að
taka pokann sinn getur verið undir
markmanninumkomið. Sústaðreynd
að leikir í undanúrslitum getur lokið
með vítaspyrnukeppni undirstrikar
mikilvægi markvarða. Markverðirnir
fjórir í undanúrslitunum, frá
Sovétríkjunum, Brasilíu, V-
Þýskalandi og Italíu voru allir mjög
hreyfanlegir. Þeir höfðu einnig góðar
staðsetningar, voru góðir í úthlaupum
og að hirða fyrirgjafir. Einnig má
nefna hversu góðir þeir voru í að
koma boltanum í leik, hvort sem var
í útkasti eða útsparki.
Maaark! Fjórir hestu markmenn
keppninnar í Seoui komust í
undanúrslit með sínum liðum og
það er engin tilviljun.
18
Skinfaxi