Skinfaxi - 01.04.1989, Blaðsíða 39
HSÞ
Á HSÞ þingi
landsfjórðungum. Þessari
tillögu var vel tekið og hún
samþykkt.
Kristján kom einnig með
þá tillögu að gerð yrði
samþykkt um þá ákvörðun
Glímusamband Islands að
færa öll glímumót vetrarins
til Reykjavfkur í trássi við
eldri samþykktir Glímu-
þings um að Islands glíman
skuli ætíð haldin í
heimahðéraði Glímukóngs
hverju sinni. Hermann
Sigtryggsson bauðst til þess
að takamáliðuppástjómar-
fundihjálSI. LýstiHermann
mikilli óánægju sinni með
þessi vinnubrögð stjórnar
Glímusambandsins.
A þingið barst úmsókn frá
nýju félagi um inngöngu í
HSÞ. Eftir nokkrar um-
Hilmar Agústson,
sundmaður ársins hjá
HSÞ og Jónas
Oskarsson,
Iþróttamaður ársins
hjá HSÞ.
Agústa Pálsdóttir var kjörin
frjálsíþróttamaður HSÞ árið 1988. Agústa
er aðeins 17 ára og geysilega efnileg en er
þegar orðin ein af bestu frjálsíþróttakonum
landsins.
Ársþing Héraðssambands Suður-
Þingey inga var haldið á Greni vík þann
18. mars síðastliðinn. Þrátt fyrir
erfiðan fjárhag sambandsins á síðasta
ári var gott hljóð í mönnum og vel
unnið á þinginu. I máli manna kom
fram einna mest ánægja með
sundstarfið á svæði HSÞ sem hefur
verið einstaklega gott. Geysi mikið
starf síðustu missera skilaði sér vel á
síðasta ári. Einna hæst bar starfið
þegar sundlið HSÞ vann sig upp í 1.
deild á Islandsmótinu í sundi í
nóvember á síðastliðnu ári.
Eilífur úr Mývatnssveit og
Völsungur á Húsavík hafa verið mest
áberandi í sundstarfi HSÞ og ríkir
mikil keppni þar í milli. Þessi félög
sameinast þó alltaf í sátt og samlyndi
undir merki HSÞ í stærri mótum á
landsmælikvarða.
Þá vakti skýrsla af starfi
borðtennisráðs einnig athygli og þá
sérstaklega um starfið hjá Magna á
Grenivík.
S-Þingeyingar tóku þá ákvörðun eftir
Landsmótið á Húsavík að setja ekki
hagnaðinn af því beint í fjárhag
sambands og félaga heldur ávaxta þá.
Það kom sér nokkuð vel því nú var
ákveðið að nýtta þann hagnað. I fyrsta
lagi varákveðiðað verja einni milljón
í starfsemi sambandsins vegna bágrar
fjárhagsstöðu. í öðru lagi var ákveðið
að eftirstöðvarnar skyldu skiptast í
tvennt. Annar hlutinn verður nýttur á
árinu 1989 til undirbúnings Landsmóti
í Mosfellsbæ 1990. Hinn hlutinn
verður nýttur til að greiða kostnað S-
Þingeyinga vegna Landsmótsins 1990,
ferðakostnaðar og annars þess háttar.
Landsmótsnefnd HSÞ var fal ið að gera
tillögur um þeta til stjómar.
Kristján Yngvason kom með tillögu
til þingsins um að unnið skyldi að því
að koma upp fullnægjandi aðstöðu til
frjálsíþróttaiðkunar með því að sett
verði gerviefni á hlaupa- og kastbrautir
stærstu íþróttavalla í öllum
ræður var ákveðið að vísa þessu máli
til stjórnar og þar með endanlegrar
afgreiðslu næsta héraðsþings HSÞ.
Svo klaufalega vikli til hjá hesta-
mönnum að enginn fulltrúi þeirra var
á þinginu til að skýra ntálin fyrir
þingfulltrúum og taka við ábendingum
um ábyrgð og skyldur þess aðila sem
gengur í HSÞ.
Nýr formaður var kjörinn á þinginu
í stað Ingólfs Freyssonar, Völsungi.
Hinn nýi formaður er Jón Fr.
Benónýsson. FramkvæmdastjóriHSÞ
hefur verið Ævar Ákason, í 50 %
starfi. Hannhefureinnigeinnigfram-
kvæmdastjóri Völsungs í 50 % starfi í
vetur og þykir það hafa gefist vel.
Þessi skipan mála verður hins vegar
ekki möguleg í sumar og eru HSÞ
menn að skoða málin hvað þetta
varðar. IH
Skinfaxi
39