Skinfaxi - 01.04.1989, Side 28
UMSE
Að fá sem flesta með
Rætt viö Jóhann Ólafsson, formann UMSE,
um félagsmál, Landsmót og fleira.
Jóhann Ólafsson hefur nú verið
formaður UMSE í eitt kjörtímabil og
var endurkjörinn formaður á síðasta
þingi sem var í mars síðastliðnum.
Jóhann býr ásamt konu sinni Unu
Maríu og sex bömum á Ytra-Hvarfi í
Svarfaðadal.
Jóhann var fyrst spurður hver væru
helstu markmiðin hjá UMSEmönnum
fyrir næstu misserin.
„Fyrst og fremst er það Landsmótið
sem við höfum stöðugt í augsýn og
höfum tekið stefnuna á. Þá sérstaklega
frjálsar íþróttir. Við höfum ráðið
góðan þjálfara, Jón Sævar Þórðarson,
og væntum við okkur mikils af hans
starfi.
En auðvitað er það ekki aðeins
frjálsar íþróttir sem við erum með
hugann við þó þær hafi alltaf skipað
stóran sess hjá UMSE og séu
fyrirferðarmiklar á Landsmótum.
Hvað varðar aðrar greinar getum við
nefnt knattspyrnu sem er í mikilli
uppsveiflu á svæðinu.
Fá sem flesta á
Landsmótiö
Einnig skákina sem er rótgróin hér í
firðinum. Við eigum titil að verja frá
síðasta Landsmóti, Skinfaxastyttuna.
Við ætlum að styðja vel við
skákmennina og sérstaklega þó að
auka breiddina í starfinu. Bæði hvað
varðar greinar á Landsmótinu og
þáttöku í þeim en einnig að vera „meiri
á velli”, ef hægt er að segja svo. Við
ætlum að ná upp góðri stemmningu í
tengslum við Landsmótið. Fá sem
flesta þátttakendur sem við teljum eiga
erindi í Mosfellsbæ en einnig hafa
góðan stuðningsmannahóp.
Það má einnig nefna blakið sem til
margra ára var mikið stundað hér.
Við vorum jafnvel leiðandi í blaki
utan Reykjavíkursvæðisins. Nú er
það nokkuð stundað á Dalvík. Þá
bendir allt til að íþróttahúsið á
Hrafnagili verði tekið í notkun í haust
og við bindum vonir við að þá komi
þaruppáhugifyrirblaki. Viðstefnum
að því að senda gott blaklið á
Landsmótið í Mosfellsbæ.
Þá er sundið að komast vel af stað.
Við munum koma til með að eiga vel
frambærilegt sundlið á Landsmótsári.
Okkur Eyfirðingum er minnisstætt
frá Landsmótinu á Húsavík sú mikla
samkennd sem var hjá keppendum og
fylgdarliði öllu. Þetta ætlum við að
aukaennfrekarfyrirnæstaLandsmót.
Við megum ekki gleyma því að
Landsmótið snýst ekki síst um að vera
með og njóta þeirrar uppifunar og
reynslu sem Landsmótin eru og verða
alltaf. Við viljum að sem flestir verði
aðnjótandi þessarar reynslu.”
Auka Félags-
málafræösluna
Að Landsmóti slepptu, hvað er þá
annað á dagskrá hjá ykkur?
„Það er alltaf stór þáttur hjá UMSE
eins og öðrum samböndum að fylgjast
með starfi félaganna", segir Jóhann.
„Styðjaþauog styrkjaístarfi sínu. Nú
þykirokkursem mikilvægt sé aðauka
félagsmálafræðsluna á svæðinu.
Okkur sýnist vera mikil nauðsyn á að
„mennta” fólk, ungt sem eldra, í
félagsstörfum. Núna á síðasta þingi
vorum við svo heppin að fá
félagsmálakennarara inn í stjórn
UMSE sem var þegar gerður að
tengilið svæðisins við
Félagsmálaskóla UMFÍ. Þetta er
Katrín Sigurjónsdóttir, Borgfirðingur
að ætt sem komin er í Eyjafjörðinn og
það vill svovel tilaðhúnersérstaklega
Kristinn Kristinsson, framkvœmda-
stjóri UMSE.
menntuð á þessu sviði. Og nú ætlum
við að vinna vel að því að þessi mál
komist í gott lag.
Það verður að segjast eins og er að
þau hafa ekki verið í góðu lagi
Jóhann afhendir Daníel Hilmarssyni, Skíðafélagi Dalvíkur , viðurkenninguna
fyrir titilinn íþróttamaður ársins hjá UMSE.
28
Skinfaxi