Skinfaxi - 01.02.1990, Page 13
Snæfell í úrvalsdeild
Ungmennafélagið Snæfell í
Stykkishólmi náði þeim merka
áfanga á nýliðnu keppnistímabili
að vinna 1. deild í körfuknattleik
og komast í fyrsta sinn upp í úrvals-
deild. Bætist þá enn eitt ungmenna-
félagið við í hóp bestu liða á Islandi
í þessari íþróttagrein.
Körfuknattleikur hefur lengi
skipað fastan sess í íþróttalífinu í
Stykkishólmi og til að fræðast
nánar um starfíð var rætt við for-
mann körfuknattleiksdeildar
Snæfells, Jóhannes Finn Halldórs-
son, og þjálfara liðsins Kristján
Agústsson Bjartmars, sem þjálfaði
liðið í vetur. Hann hefur mikla
reynslu sem körfuknattleiksmaður
og var um tíma einn af máttar-
stólpum íslenska landsliðsins.
Jóhannes Finnur Halldórsson, sem
er fæddur og uppalinn í Grundar-
firði, hefur verið formaður körfu-
knattleiksdeildar Snæfells í eitt ár.
Hann sagði að áður hefðu leik-
mennirnir sjálfir annast rekstur
deildarinnar en ákveðið var að
breyta því og fá einstaklinga sem
ekki léku með liðinu. Til hans hefði
sennilega verið leitað m.a. vegna
fyrri reynslu, en Jóhannes Finnur
var eitt ár framkvæmdastjóri KKI.
Hann sagðist aldrei hafa stundað
körfubolta sem keppnisíþrótt.
Starfið í vetur hefur verið með
hefðbundnu sniði," sagði Jóhannes
Finnur. Við erum með sex flokka í
keppni og einn byrjandaflokk sem
ekki er skráður í mót. Það starfa
fimm þjálfarar hjá deildinni:
Kristján Ágústsson Bjartmars,
Olafur Sigurðsson, María
Guðnadóttir, Davíð Sveinsson og
Eggert Halldórsson.
Aðstaðan hræðileg!
Aðstaðan hjá okkur er hræðileg.
Gamla íþróttahúsið sem var stór-
hýsiásínumtímarúmart.d. aðeins
einn badmintonvöll en í nýja húsinu
verður hægt að leika á sjö völlum í
einu.
Meistaraflokkurinn hefur æft
þrisvar í viku og þar af hefur ein
æfingin verið úti í Grundarfirði.
Þeir fara yfirleitt á þremur bílum
og aka á hverri æfingu samtals 300
km. Leikmennirnirhafasennilega
ekið milli 3000-4000 km vegna
æfinga í vetur.
Vilji bæjaryfirvalda að ljúka húsinu
Það er fullur vilji bæjaryfirvalda
að ljúka við íþróttahúsið fyrir næsta
haust og það er reyndar forsenda
þess að hægt verði að keppa í
úrvalsdeildinni. Hefðin fyrir
körfuboltanum er hér til staðar, og
það hefur mikið að segja að
foreldrar og aðrir komi á leiki, og
styðji við bakið á unglingum að
öðru leyti. Fjárhagsdæmið er að
sjálfsögðu stór þáttur í þessu öllu
saman og allir bæjarbúar verða,
eins og hingað til, að standa að
baki liðsins til að dæmið gangi
upp.
Markmiðið að tryggja sætið í
úrvalsdeild
Framtíðarmarkmið er að sjálfsögðu
að tryggja veru liðsins í úrvals-
deildinni og auðvitað verður það
erfitt. En ef breiddin er til staðar
eigum við möguleika á að halda
sæti okkar. Unglingastarfið er mjög
öflugt, en það er mikið atriði að
missa ekki unglingana í burtu. í
því sambandi er mjög mikilvægt að
hér er að koma framhaldsdeild sem
lengir veru þeirra í heimahúsum.
Lið Snæfells sem komst upp í Úrualsdeildina.
Stjórnarmönnum UMFÍ
margt til lista lagt
Það er greinilegt að Stjórnarmenn
UMFI eru hæfir á mörgum sviðum.
Matthías Lýðsson, stjórnarmaður frá
Húsavík í Kirkjubólshreppi vann það
mikilhæfa afrek, með konu sinni
Hafdísi Sturlaugsdóttur, þann 3. apríl
að eignast fyrsta stúlkubarn hreppsins
1 27 ár. Þegar það meybarn fæddist
SKINFAXI
höfðu liðið 63 ár frá fæðingu
stúlkubarns. Skinfaxi óskar nýbökuð-
um foreldrum til hamingju.
Gjaldkeri med rjúkandi ráð
Um þessar mundir er sýningum á
leikritinu „Rjúkandi ráð” hjá
Ungmennafélagi Reykdæla í
Borgarfirði að Ijúka. Höfundar
verksins eru Jónas Árnason, Jón Múli
Árnason og Stefán Jónsson. En það
var enginn annar en Flosi Gunnlaugur
Ólafsson stórbóndi úr Borgfirði sem
leikstýrði verkinu. Aðsóknin hefur
verið mjög góð og urðu sýningar fleiri
en áætlað var.
Gjaldkeri UMFI, Þórir Jónsson frá
Reykholti, fer með stórt hlutverk í
leiknum. Það er ekki ofsögum sagt að
hann hafi sett mikinn svip á verkið, því
eins og menn vita þá er Þórir svipmikill
maður og gerði hann sér lítið fyrir og
sló í gegn með söng og leik.
13