Skinfaxi - 01.02.1990, Side 17
Jón Arnar Magnússon, HSK.
Kúluvarp
Sömu menn skipa listann og árið
áður með óverulegum innbyrðis
breytingum. Pétur er langbestur
og átti kast yfir 20 m á umdeildu
móti, þar sem árangur m. a. í
kúluvarpi var dæmdur ólöglegur á
hæpnum forsendum að sumra mati.
Andrés er vaxandi kastari og bætti
sig mikið. Guðni og Sigurður eru
líka í framför.
Kringlukast
Kringlukastararnir stóðu fyrir
sínu með Véstein Hafsteinsson í
fararbroddi. Islandsmethans 67,64
er sérlega glæsilegt þar sem það er
5. besta kast í heimi á síðasta ári.
Helgi, Pétur og Unnar eru allir í
framför svo og Bjarki, sem er aðeins
19 ára gamall.
Sleggjukast
Stórstígar framfarir hafa orðið í
sleggjukasti sem betur fer, því sú
greinerslökustkastgreinanna. Eg
bind miklar vonir við Jón, sem er
aðeins tvítugur að aldri og spái því
að hann kasti sleggjunni um 60
metra í sumar.
Spjótkast
Arangur í spjótkastinu er glæsi-
legur, þar er Einar fremstur og af
sérfræðingum valinn 4. besti
spjótkastari í heiminum á síðasta
ári. Sigurður bætti sig um rúma 3
metra og er vís til að kasta yfir 80
metra í sumar. Bestu kastararnir
bera höfuð og herðar yfir aðra
frjálsíþróttamenn. Einar Vil-
hjálmsson, Sigurður Matthíasson
og Vésteinn Hafsteinsson hafa
þegar náð tilskildum lágmörkum
fyrir Evrópumeistaramótið í Split í
sumar og Pétur Guðmundsson er
ekki langt frá því. Vonandi hætta
þeir ekki strax keppni því erfitt
verður að fylla í skörð þessara
manna sem verða 28 -30 ára á
þessu ári.
Tugþraut
Mikil gróska er í tugþrautinni
enda markvisst unnið að
uppbyggingu hennar. Jón Arnar
hefur burði til að ná á toppinn í
greininni. Hannerkornungureins
og frændi hans Ólafur sem einnig
er geysilega efnilegur. Friðgeir er
byrjandi og getur bætt sig um 1000
stig í sumar, ef allt gengur að
óskum. Gísli nálgast sitt besta
form og Unnar er í framför, en þarf
að bæta hlaupin og stangarstökkið.
Eg á allt eins von á að 4-6
tugþrautarmenn nái 7000 stigum í
sumar og vonandi setur Jón Arnar
met í greininni.
Konur
Spretthlaup
Árangurí 100og200m. erlakari
en í fyrra, sem sannar máltækið að
lengi getur vont versnað. Hins-
vegar lofar árangur á innanhúss-
mótum vetrarins góðu og ég spái
því að Guðrún Heiða og Snjólaug
verði sterkar í sumar. Svanhildur
hefur átt við meiðsli að stríða, en
nær sér vonandi á strik sem fyrst.
Ágústa Pálsdóttir er efnilegur 400
metra hlaupari, en þarf að æfa
betur til að ná árangri.
Millivegalengdar og
langhlaup
Hér er um stöðnun að ræða.
Miklu munar að Rut var ekki með.
Margrét og Fríða Rún eru á réttri
leið. GuðrúnB. Skúladóttir, Lísbet
og Guðný eru ungar og efnilegar.
Ekkert annað en vinna og aftur
vinna skilar árangri í þessum
greinum.
Grindahlaup
Stutta grindin þokast í rétta átt.
Guðrún er lang best og kom
verulega á óvart. Þuríður bætti sig
einnig mikið. Árangur í löngu
grindinni var afleitur.
Þuríður Ingvarsdóttir, HSK.
Bodhlaup
Stelpurnar eiga að geta hlaupið
betur, sérstaklega sveit UMSK. Ég
býstviðaðþrjársveitirhlaupi undir
50 sek. í 4x100 m og hugsanlega
tvær til þrjár undir 2:20 mín í 1000
metrum í sumar.
Hástökk
Þóra Einarsdóttir bar af í
hástökkinu. Hún bætti sig um 20
sentimetra og getur náð langt í
greininni. Sex næstu stúlkur
stukku jafn hátt 1,60 metra. Af
þeim má binda miklar vonir við
Maríönnu Hansen og Sigurlaugu
Gunnarsdóttur, sem eru 14 og 15
ára gamlar.
Guðrún Arnarsdóttir, UMSK.
SKINFAXI
17