Skinfaxi - 01.02.1990, Síða 21
Hin nýja glæsilega sundmiðstöð í Keflavík. Ljósm. /Víkurfréttir.
Ný
sundmiðstöð
í Keflavík
Fréttir frá UMFK
Þann 3. mars var opnuð ný
sundmiðstöð í Keflavík. Mikiðvar
um dýrðir, Suðurnesjabúum var
boðið til veislu og frítt var í sund.
Fyrsta skóflustungan að þessu
glæsilega mannvirki var tekin 25.
maí 1985. Utisundlaugin er glæsi-
leg 25X12,5 metrar, með fímm
keppnisbrautum. Fyrirhugað er
að bæta seinna við og byggja inni-
sundlaug 25X12,5 metra. Verður
þá hægt að ganga á milli lauganna
um sólskála. Fjórir heitir pottar
eru við laugina og er einn
sérstaklega fyrir börn. Einnig er
sérstök barnalaug og þar er sérstök
skábraut fyrir hjólastóla. Allur
aðbúnaður er til fyrirmyndar og
mjög góð aðstaða fyrir fatlað fólk.
I lokin má geta þess að aðsókn
fyr sta mánuðinn hefur margfaldast
frá því sem var í gömlu laugina og
segir það margt um nauðsyn
hennar.
Badmintondeild
stofnuð innan UMFK
Stofnfundur Badmintondeildar
Ungmennafélags Keflavíkur var
haldinn 14. febrúaríhúsifélagsins
að Skólavegi 32. Fjölmenni var á
fundinum og er mikill áhugi fyrir
badminton í Keflavík. Badminton-
æfíngar hafa verið tvisvar í viku og
hafa þær verið vel sóttar.
Þar sem badminton var ekki
innan neins félags var nauðsynlegt
að stofna deild til þess að geta keppt
á viðurkenndum mótum.
Skipuð hefur verið stjórn bad-
mintondeildar UMFK og er hún
þannig skipuð: Benedikt Sigurðs-
son formaður, Grétar Miller vara-
formaður, PállViðarssongjaldkeri,
Þorsteinn Þorsteinsson ritari og
Viðar Guðjónsson meðstjórnandi.
Varamaður í stjórn er Haraldur
Hreggviðsson. Fyrsta verkefni
nýskipaðrar stjórnar var að ráða
þjálfara og var Viðar Guðjónsson
fenginn í það starf. Viðar hefur
mikla reynslu og kunnáttu í bad-
minton, þar sem hann hefur starfað
og stundað íþróttina með Tennis-
og badmintonfélagi Reykjavíkur.
Æfíngar eru tvisvar í.viku.
ÍSKÍR Aifcxrm
0 GfiLÆNMETt
inanai lil.
pemn
UMFN
bikarmeistarar í
körfuknattleik
Njarðvíkingar tryggðu sér bikar-
meistaratitilinn í körfuknattleik karla
með því að bera sigurorð af Keflvík-
ingum í hörkuleik þann 22. mars.
J afnræði var með liðunum allan leikinn
og það var ekki fyrr en á síðurstu
mínútunum að Njarðvíkingar sigu fram
úr. Lokatölur urðu 90:84. ArniLárus-
son þjálfari UMFN var að sjálfsögðu
ánægður með sína menn og sagði m. a.
að reynsla liðsins hefði komið berlega í
ljós og þeir hefðu getað haldið aðal
“skotmaskínu” Keflavíkurliðsins í
skefjun.
SKINFAXI
Ljósm. IVíkurfréttir.
Gísli Jóhannsson.
21