Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.02.1990, Síða 31

Skinfaxi - 01.02.1990, Síða 31
Gryfjan nýtist bæði fyrir byrjendur og lengra komna Formaður fimleikastjórnar Gerplu er Elsa Jónsdóttir. ÁþlngiUMSKll. febrúar var henni afhentur Félags- málaskjöldur UMSK, sem veittur er þeim sem hefur unnið gott og heilladrjúgt starf á sviði félagsmála. Elsa var tekin tali og hún fyrst spurð hvaða þýðingu hún teldi að þessi nýja gryfja ætti eftir að hafa fyrir Gerplu og starfið í fimleikunum. „í upphafi tölu sumir að gryíjan nýttist einungis fyrir lengra komna. En það hefur sýnt sig að gi'yfjan nýtist vel bæði fyrir byrjendur og lengra komna. Fimleikagryfjan kemur að góðum notum fyrir áhaldafimleika sem og almenna fimleika.” Elsa sagði að merkja mætti fjölgun þátttakenda í fimleikum jafnt og þétt síðan 1984. Sigurður Freyr Bjarnason. Heiðursviðurkenning UMSK veitt í fyrsta skipti í 68 ára sögu sambandsins Ársþing UMSK, hið 66. í röðinni var haldið 11. febrúar í Valhúsaskóla á Seltjarnarnesi. Þingforsetar voru Páll Aðalsteinsson, UMFA og Guðmundur Davíðsson, Gróttu. Hafsteinn Pálsson var endurkjörinn formaður sambandsins, en aðrir í stjórn voru kjörnir: Þorgrímur Októsson UMFA og Höskuldur Gunnarsson Umf. Drengi. Ester Jónsdóttir UBK og Hraunar Daníelsson UBK voru kjörin til tveggja ára á 65. ársþingi UMSK og sitja því áfram. I varastjórn voru kjörin Alda Helgadóttir Stjörnunni, Birgir Ari Hilmarsson Ymi og Björn Hermanns- son Gróttu. Á þinginu var mikið rætt um Landsmótið í Mosfellsbæ. Formaður UMSK, Hafsteinn Pálsson sagði að 20. Landsmót UMFI væri stærsta verkefni sem UMSK hefði tekið þátt í og stefnt yrði að því að gera mótið eins glæsilegt oghægtværi. Hafsteinnsagðiaðhvergi hefði verið staðið eins vel að upp- byggingu íþróttamannvirkja og í Mosfellsbæ. Á þinginu voru afhentar viðurkenn- ingar eins og venja stendur til. Pálmi Gíslason, formaður UMFI sæmdi þau Albert H. N. Valdimarsson HK og Ólínu Sveinsdóttur UBK Starfsmerki UMFÍ. Félagsmálaskjöld UMSK hlaut Elsa Jónsdóttir Gerplu, afreksbikar UMSK hlaut Helgi Jóhannesson karatemaður úr UBK og UMFÍ-bikarinn hlaut meistaraflokkur Stjörnunnar í hand- knattleikkvenna. Starfsmerki UMSK hlutu þau Bjarni Halldórsson UMFA, Margrét Kristjánsdóttir Gróttu, Gunnar Lúðvíksson Gróttu, Ólína Sveinsdóttir UBK og Júlíus Arnarson, Stjörnunni. Einnig fengu þeir Kristinn Jóhannsson UBK, Albrecht Ehmann Stjörnunni og Ingvar Árnason Gerplu Starfsmerki UMSK, en þeir voru ekki Hafsteinn Pálsson, form. UMSK, afhendir Sveini Björnssyni, forseta ISI, heiðursviðurkenningu UMSK. viðstaddir til að veita viðurkenn- ingunum viðtöku. í fyrsta skipti í 68 ára sögu sambandsins var veitt Heiðursviður- kenning UMSK, þá viðurkenningu hlaut Sveinn Björnsson, forseti ISI. Heiðursviðurkenningin er skjöldur, sem veittur er öðrum en félagsmönnum. Skjöldurinn er veittur þeim sem hefur styrkt eða aðstoðað UMSK eða aðildarfélög þess með verulegum hætti. Hjá Landsmótsnefnd UMSK kom fram að unnið væri af krafti að undirbúningi fyrir Landsmótið. Handhafar UMFÍ-bikarsins: Meistaraflokkur Stjörnunnar í handknattleik. SKINFAXI 31

x

Skinfaxi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.