Skinfaxi - 01.02.1990, Síða 32
Héraðsþing HSK og
80 ára afmæli
Héraðssambandið Skarphéðinn hélt
sitt 68. héraðsþing á Hótel Örk í
Hveragerði, síðustu helgina í febrúar.
Að þessu sinni var þingið nokkuð
frábrugðið síðustu þingum, því
samhliða var minnst 80 ára afmælis
héraðssambandsins.
Að kvöldi laugardags var boðið upp á
afmæliskvöldverð, sem á annað
hundrað manns tóku þátt í. Þar voru
einnig veittar ýmsar viðurkenningar.
Pálmi Gíslason, formaður UMFI
sæmdi þau Halldóru Gunnarsdóttur,
Umf. Baldri, Hraungerðishreppi,
Valgerði Auðunsdóttur og Garðar
Vigfússon, Umf. Skeiðamanna
Starfsmerki UMFÍ.
Sæmdarheitið Iþróttamaður HSK
1989 hlaut Vésteinn Hafsteinsson,
Umf. Selfoss, en á árinu setti hann m.
a. Islandsmet í kringlukasti, sem
jafnframt var 5. besti árangur í
greininni í heiminum það árið. Þá
hlaut hann einng bikar fyrir besta afrek
karla í fijálsum íþróttum, Afreksbikar
í frjálsum, auk þess að vera frjáls-
íþróttamaður ársins. Stigahæstafélag
samkvæmt stigaútreikningi allra HSK
móta var Umf. Selfoss, með 165,5 stig.
Félags- og framfarabikarinn hlaut að
þessu sinni Umf. Hekla, en hann er
veittur því félagi sem sýndi mesta
framför á árinu. Keppni úr fjarlægð
vann Umf. Merkihvoll og er þetta
32
fimmta skiptið í röð sem félagið nær
þeim árangri. Besta afrek karla í sundi
vann Magnús Már Ólafsson, Umf. Þór,
sem einnig hlaut Afreksbikarinn í
sundi, auk þess að vera sundmaður
ársins. Systir hans, Bryndís
Ólafsdóttir, hlaut bikar fyrir besta
afrek kvenna í sundi. Besta afrek
kvenna í frjálsum íþróttum á árinu
vann Birgitta Guðjónsdóttir Umf.
Selfoss. Þá voru íþróttamenn í
einstökum íþróttagreinum heiðraðir,
en alls voru þeir 14 að þessu sinni.
Einnig voru tveir kappar heiðraðir
fyrir 40 ára samfelda keppni á
héraðsmótum HSK. Þetta eru þeir
Jóhannes Sigmundsson, Umf. Hruna-
manna og Sveinn A Sveinsson, Umf.
Selfoss. Fengu þeir aíhentar endur-
prentanir af gömlu verðlaunaskjali
Skarphéðins frá 1915, auk heiðursfána
HSK.
Þá rifjaði Hafsteinn Þorvaldsson upp
sögu HSK í stórum dráttum og
Skeiðamenn settu á svið dansleik frá
því um 1940. Sleifarkeppnin var á
sínum stað og sigurvegari að þessu
sinni varð Þuríður Jónsdóttir, eftir
harða keppni við einn alþingismann
Sunnlendinga og fleira gott fólk.
En þingið sjálft var að þessu sinni
starfssamt og gott, þar sem mörg mál
voru rædd ogýmsar ákvarðanir teknar.
I skýrslu formanns kom fram að starfið
á síðasta ári var blómlegt og má þar
m.a. nefna átak í almenningsíþróttum,
hreinsunar-átak, úrgáfustarfsemi,
foreldrastarf, auk fjölda keppna og
móta. Hæst bar þar íþróttahátíð HSK
á Hvolsvelli, sem var fjölmennasta
íþróttamót á landinu það árið.
I ár verður mikið um að vera hjá
HSK og ber þar hæst Landsmót UMFÍ
í Mosfellsbæ, Íþróttahátíð HSK og
Iþróttahátíð ISI. Ljóst er að árið verður
kostnaðarsamt og mun reyna á
samtakamátt allra á svæðinu til að
leysa það mál.
Fjögur ný félög voru tekin inn í HSK
á þinginu, þ. e. Golfklúbburinn Dalbúi
í Laugardal, Skotfélag Suðurlands og
íþróttadeildir hestamannafélaganna
Trausta ogGeysis. Þar með eru félögin
innan HSK orðin 42 og félagsmenn
rúmlega 5000.
Meðal þess sem samþykkt var á
þinginu má nefna reglugerð um afreks-
sjóð boltaíþrótta, smávægilegar breyt-
ingar á lögum HSK, breytingu á reglum
um þátttöku kvenna í glímu, ályktun
um framkvæmd leikjanámskeiða,
samþykkt um að hvetja félög til að
keppa undir eigin merkjum á mótum,
áskorun til viðkomandi yfirvalda um
bætta æfingaaðstöðu fyrir sundfólk,
samþykkt um að fylgja átaki um
almenningsíþróttir eftir, auk fjölda
annarra samþykkta.
Nýja stjórn HSK skipa eftirtalin:
Björn B. Jónsson, formaður, Jón
Jónsson, gjaldkeri, Þórður G. Arnason,
ritari, Sigurjón Karlsson, varformaður,
Ingibjörg Sverrisdóttir, meðstjórnandi
og varamenn Kári Rafn Sigurjónsson,
Aðalsteinn Sveinsson og Þórunn
Jóhannsdóttir.
Bændaglíma Suðurlands var haldin
í kaffihléi á sunnudeginum og að þessu
sinni var glímusveit KR sem keppti við
sveit HSK. Eftir harða og spennandi
keppni vann lið HSK við mikinn fögnuð
áhorfenda.
Þingið sátu um 100 manns, auk
gesta. Þessmáaðlokumgetaaðnæsta
héraðsþing verður haldið í Skógum að
ári.
Handboltaliðin hjá
Umf. Selfoss í 1. deild
Meistaraflokkar karla og kvenna hjá
Ungmennafélaginu Selfoss hafa náð
þeim mikla áfanga að komast í 1. deild.
Bæði þessi lið eru innfædd og uppalin
Selfosslið og greinilegt að efniviðurinn
lofar góðu.
íþróttamenn HSK1989.
SKINFAXI