Skinfaxi - 01.05.1994, Blaðsíða 13
um. í UMSK verða flestir í stigasæt-
um, fleiri strákar en stelpur þó. Félagið
hefur á að skipa ágætu og upprennandi
liði. En spáin er svona: UMFK hafnar í
1. sæti. HSK verður í 2. sæti og UMSK
í því 3. UMFN er mjög fjölmennt lið
og hefur á að skipa mjög ungum sund-
mönnum, sem hefur gengið vel upp á
síðkastið. Það lið set ég því í 4. sætið.
HSB, USVH og UMSB eru frekar jöfn
og verða í 5., 6. og 7. sæti, ekki þó
endilega í þeirri röð sem þau eru talin í
hér.
Næst koma svo HVÍ, HSÞ og
USAH. Það hefur fremur lítið borið á
sundliðum í þeim héruðum sem þessi
lið koma úr. Neðstu sætunum spái ég
Hrafnaflóka, UÍA, HSH, USVS og
UMSS.
Ég óska að endingu öllum góðs
gengis og skemmtunar á landsmóti.
. Peningamálin
emumsl
s
/
Hallbera Stella Leifsdóttir, Badmintonfélag Akraness.
Okkur finnst best að fá
yfirlit reglulega og hafa allt
skipulag á einum stað.
Yfirlitin eru einföld og
auðskiljanleg fyrir venjulegt
fólk.
Innheimta félagsgjalda
Greiðsluþjónusta
Yfirlit yfir félagsgjöldin
Rekstrarreikningur árlega
Bókhaldsmappa í kaupbæti
L
Landsbanki
íslands
Banki allra landsmanna
Skinfaxi
13