Skinfaxi - 01.05.1994, Blaðsíða 38
/ landgræðsluferð sunnan Vatnajökuls.
lendisbirkið vex við Karlsdrátt og þar
um kring. Hálendisbirkið er mjög
harðgert og hyggjast skógræktarmenn
reyna að hefja ræktun á því, sem er
ekki hægt öðru vísi en að ná í þessa
sprota og það á réttum tíma. ‘ ‘
Tvö tonn af fræi
„Enn má nefna að árið 1992 fórum
við af stað með herferð sem við köllum
„Fræ á fjöll - ruslið heim.“ Þá fórum
við af stað í samvinnu við Landgræðsl-
una og Olís. Landgræðslan lét útbúa
2.5 kílóa fræpoka með melgresi, snar-
rótarpunti og áburði. Við létum aftur
útbúa stóra og sérstaklega sterka rusla-
poka fyrir okkar félagsmenn, sem þeir
gætu hafi í bílunum og tekið allt rusl til
baka. Við útbjuggum þetta þannig að
þetta eru einingar sem í eru nokkir
ruslapokar og einn áburðarpoki ásamt
leiðbeiningum. Við erum búnir að fara
með í kringum 2 tonn af fræi og áburði
til dreifingar uppi á hálendinu á þenn-
an hátt. Þetta verkefni er enn í gangi.
Sá skammtur sem við létum útbúa í
upphafí, þ.e. 2.5 tonn af fræi og áburði
og 10.000 ruslapokar, er nú senn á
þrotum og við reiknum við að láta út-
búa meira á næstunni.
I fyrra létum við einnig gera litla
ruslapoka fyrir okkur til að hafa í
mælaborði bifreiða. Þá er m.a. hægt að
fá á Olís-bensínstöðvunum, en hinir
stærri eru aðeins til afgreiðslu á stöð-
um þar sem jeppamenn koma.“
_ Hvað með samstarf ykkar við
Náttúruvemdarráð?
„Það er með miklum ágætum. Við
eigum nú orðið aðalfulltrúa á þingi
ráðsins, sem kemur í kjölfar starfs okk-
ar að þessum málum. Síðan erum við í
nefnd með Náttúruverndarráði um
„vélvædda útivist að vetrarlagi.“ Þetta
er samkvæmt samnorrænni reglugerð.
Það er mjög gott samstarf á milli Nátt-
úruverndarráðs og klúbbsins og langt í
frá að það sé eitthvert stríð á milli
þessara tveggja aðila eins og margir
vilja halda. Við erum í rauninni að
vinna að sömu hlutum, náttúruvernd,
og það gerum við, klúbbfélagar, ekki
vegna slæmrar samvisku heldur af ein-
skærum áhuga. Það er forsenda okkar
tilveru sem ferðahóps að halda landinu
í góðu horfi.“
Fræðsla fyrir útlendinga
_ Hvað er framundan hjá ykkur?
„Nú er í bígerð að útbúa fræðslu-
bækling til dreifingar meðal innlendra
og erlendra ferðamanna. Okkur hefur
fundist erlendir ferðamenn fá heldur
lítinn fróðleik frá yfirvöldum hérna.
Því erurn við að láta útbúa efni til
dreifingar til þeirra. Aætlað var að
reyna að koma því í gagnið í sumar, en
það eru ýmsir hlutir sem spila inn í
þannig að útkoma þess gæti tafist fram
á næsta vor.
Þessum bæklingi verður dreift í
Norrænu og á bílaleigurnar. Við viljum
ná til erlendra ferðamanna áður en þeir
hefja ferðalagið hér.
Við munum halda áfram með stiku-
ferðirnar og mér skilst að leiðin liggi á
Syðra-Fjallabak í haust.
Þá reiknum við með einni til tveim
ferðum í samvinnu við Landgræðsluna
á þessu ári, svo sem verið hefur að
undanförnu.
A síðustu tveim árum höfum við
beint til félagsmanna með auglýsing-
um í blöðum að loka leiðum vegna
aurbleytu, þegar við höfum talið hættu
á skemmdum vegna umferðar. Okkar
menn eru mikið á ferðinni og því frétt-
um við mjög fljótlega ef einhver hætta
er á ferðum. Stundum höfum við verið
allt að tveim vikum á undan Vegagerð-
inni að auglýsa slíkar lokanir.
En starf okkar í dag beinist aðallega
að því að fræða almenning og kynna
fólki hvernig við störfum. Við viljum
fá sem flesta með í baráttuna fyrir
hreinni og óspjallaðri náttúru landsins.”
Frœið er herfað niður svo þaðfjúki ekki burt.
38
Skinfaxi