Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.05.1994, Blaðsíða 37

Skinfaxi - 01.05.1994, Blaðsíða 37
Þarna sést glöggt hvernig böggunum er dreift í garða til að hefta sandfok. okkar og að það verði ekki fyrir skemmdum.“ Árangursríkar ferðir _ Hafíð þið unnið eitthvað að land- græðslu? „Já, við höfum farið í tvær sáninga- ferðir í samvinnu við Landgræðsluna. Hún lagði til fræ og áburð, sem við sáum um að koma niður. Við fórum á svæðið milli Skjaldbreiðar og Þóris- jökuls á árunum 1992 og 1993. Þar sáðum við í örfoka svæði. Nú er komin þama græn, falleg slikja yfir allt svæð- ið, sem er um þrír hektarar að stærð. Á seinna árinu fórum við einnig svonefnda baggaferð. Þá hafði Land- græðslan samband við okkur og óskaði eftir aðstoð við að koma böggum sem þeir höfðu flutt upp á Haukadalsheiði á leiðarenda. Um var að ræða melgresis- hálmbagga, sem þeir raða í garða til þess að stöðva sandfok efst upp við Sandvatn. Þeir fengu okkur til sam- starfs til þess að taka baggahrúgurnar og dreifa þeim. Við mættum með 10- 15 bíla og kerrur og komum böggun- um á fyrirhugaðan stað. I vor leitaði svo Skógrækt ríkisins til okkar, því þeir höfðu áhuga á að nálg- ast svokallað hálendisbirki og ná af því sprotum. Sú sprotatínsla þarf að fara fram í lok apríl eða byrjun maí. Þá er fært upp á hálendið til þess að nálgast þá. Við fórum í könnunarleiðangur um helgi síðast í apríl og reyndist þá hægt að komast upp að Hvítárvatni, en há- Skinfaxi 37

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.