Skinfaxi - 01.08.1996, Blaðsíða 33
engan tíma til að sakna íslands eða neins
annars ef út í það er farið. Það var margt
sem ég prófaði að gera; smíða úr tré og
járni, leggja net og skera fiskana sem
lentu í þeim, vinna í býflugunum, spila
og leika næstum allar gotlensku
séríþróttirnar og synda í 14 gráðu heitum
sjónum. Strákurinn átti afar myndarlegt
vopnasafn og maðurinn átti tvær
haglabyssur. Ég kastaði einnig
búmerang, skaut af lásboga, haglabyssu
og indíánablásturspíu. Við keyrðum
einnig um mikið af Gotlandi, fórum í
sirkus og á burtreiðar. Þá gengum við í
gegnum skógarsvæði sem fyrir nokkrum
árum hafði brunnið í stórum skógareldi,
en var smám saman að ná á sér eftir
áfallið - það var það fallegasta sem ég sá
í Svíþjóð fyrir utan kvenfólkið.
Stanslaust stuð
Þá var komið að landsmóti 4H í Kalmar
19. - 26. júlí. Það var þannig upp sett að
hvert „Lan" (fylki eða sýsla) hafði
afmarkað svæði fyrir sín tjöld og allir
höfðu sitt þema. Við „iffararnir" vorum
nú allir saman komnir og í hópinn höfðu
bæst tvö frá Bandaríkjunum og ein frá
Lúxemborg. Þema okkar var að vera
geimverur eins og við höfðum áður
ákveðið en saman vorurn við látin setja
upp sýningu fyrir Svíana og heppnaðist
hún mjög vel.
Þessi vika var stanslaust stuð. Ég og
Hollendingurinn gátum báðir talað
sænsku og okkur kom afar vel saman við
Svíana. Þar sem Skánn tilheyrði
Danmörku fyrri tíð voru margir hinna
Svíanna sem sungu stöðugt að það ætti
að sameina þetta svæði Danmörku á
nýjan leik (svona til að stríða
Skánungunum aðeins). Hugmyndin féll
vel í kramið hjá mér og ég gerðist svo
djarfur að strika yfir „Malmöhuslan"
(Malmö er höfuðborg Skáns) og skrifaði
Danmark í staðinn. Annars lét ég eins og
fífl alla vikuna mér og öðrum til mikillar
skemmtunar (nema kannski skoska
„iffaranum" sem var alltaf jafn
hneykslaður á öllu sem var fyndið eða
skemmtilegt). Ég sýndi til dæmis Tea-
Kwon-Do á skemmtikvöldi og fór á
kostum á öllum þremur diskótekunum
sem voru haldin þessa vikuna. Einn
morguninn fékk ég eftirfarandi bréf:
„Karlsbrev, Rökkvi, IFYE, jag er sa
nyficken pa din fysiska form, möt mej pa
dansgolvet, sa kan vi nok twista."
Ekki feiminn við flórinn
Að öllu þessu loknu var aðeins ein
fjölskylda eftir, en hún var einmitt á
Skáni. Konan var meira að segja æðsti
foringi 4H í Malmöhuslan en þau hjónin
voru á sextugsaldri og áttu eina 18 ára
dóttur sem var þó lengst af á Italíu með
kærastanum sínum. Maðurinn var
svínabóndi og átti mikið af kjötsvíni en
þarna vann ég töluvert í svína-
búskapnum og lærði að það þýddi
ekkert að vera feiminn við flórinn.
Við keyrðum mikið um Skán og ég synti
mikið í Eystrasaltinu. Ég smakkaði
ferskvatnshumra og Surtrömming, sem
ég veit eiginlega ekki alveg hvað er, en
það er mjög þjóðlegur fiskréttur hjá
Svíum. Ég gisti einnig hjá systur
konunnar í Malmö meðan á Malmö-
hátiðinni stóð. Ég hitti manninn sem
veiddi stærsta fisk sem veiðst hefur á
línu en það var hvíthákarl sem var um
tonn á þyngd og ég fékk að sjá kjálkana
úr skrímslinu. Móðurbróðir minn sem
var að vinna í Eslöv kom í heimsókn á
bæinn eina helgina.
Síðasta verkið
Mitt síðasta verk í Svíþjóð áður en ég fór
til Danmerkur var að gera út af við
allstórt geitungabú sem hékk frá þakinu
á verkfæraskemmu í garðinum þeirra.
Ég sauð vatn í potti, stóð upp á stól og
baðaði litlu greyin aðeins. Síðan tók ég
búið niður og kom með það heim í
krukku til minja. Sama dag fór ég til
Danmerkur og gisti hjá vinafólki í
Slagelse áður en ég flaug heim frá
Kastrup.
Sérsmíðum allar tegundir trélista sem óskað er eftir,
fljótt og listavel. Eigum liival ódýrra skrautlista á lager.
Smíðum einnig nánast hvað sem er, svo sem hurðir
glugga og margt fleira. A
Veljum íslenska
framleiðstu
Okkur er margt til lista lagt
LISTASMÍÐI SF.
SÚÐARVOGI 9-104 REYKJAVÍK
SÍMAR 588 9133 OG 85 32532
g
Við framleiðum
endingargóðar
flaggstangir úr tré
Strandgötu M, 735 Eskifjörður
Símar: 476-1399, 476-1499, fax: 476-1599
Farsímar: 852-1599, 852-4935, 854-8499
Hópferðir: 10-65 manna bílar
Snjóbíllinn Tanni
Trukkurinn Valgeröur
Lúxusbíllinn Drottningin
Gamla góða Guðríður
Umboð: Sjóvá Almennar
Framkvæmdastjóri: Sveinn Sigurbjarnarson