Skinfaxi

Ukioqatigiit

Skinfaxi - 01.12.1999, Qupperneq 2

Skinfaxi - 01.12.1999, Qupperneq 2
SKINFAXI Ritstjóri jóhann Ingi Árnason Auglýsingar Markaðsmenn Ljósmyndir Sigurjón Ragnar Jóhann Ingi Árnason Umbrot jóhann Ingi Árnason Ritstjórn Anna R. Möller Sigurbjörn Gunnarsson Sigurlaug Ragnarsdóttir Vilmar Pétursson Framkvæmdastjóri Sæmundur Runólfsson Ábyrgðarmaður Þórir Jónsson Prentun Svansprent Pökkun Vinnustofan Ás Dreifing Blaðadreifing Stjórn UMFÍ hórir Jónsson Björn B. jónsson Kristján Yngvason Jóhann Ólafsson Kristín Gísladóttir Anna R. Möller Sigurbjörn Gunnarsson Sigurður Aðalsteinsson Helga Guðjónsdóttir Kjartan Páll Einarsson Helga Jónsdóttir Skrifstofa Skinfaxa Þjónustumiðstöð UMFÍ Fellsmúla 26 108 Reykjavík sími: 568-2929 fax: 568-2935 netfang: umfi@umfi.is Það eru ekki mörg tímarit í heiminum sem geta státað af því að hafa komið út óslitið í 90 ár - Skinfaxi kom fyrst út árið 1909 og enn í dag þjónar hann ungmennafélags- hreyfingunni Til hamingju! Það er mikill heiður að vera ritstjóri tímarits sem komið hefur út samfleytt í 90 ár. Það er erfitt til þess að hugsa að Skinfaxi, tímarit Ungmennafélags íslands, hafi fyrst litið dagsins Ijós áður en afar mínir og ömmur fæddust. Skinfaxi kom fyrst út í október árið 1909 og voru ritstjórar blaðsins þá tveir: Helgi Valtýsson og Guðmundur Hjaltason og rituðu þeir eftirfarandi inn- gangsorð í 1. tölu- blaðið; Skinfaxi heitir hann, og sól og sumaryl vill hann breiöa yfir iand allt. Bera kveöju mili ungmennafélaganna. Og færa þeim fréttir af starfi voru víðsvegar um land. Fyrsta árið kom Skinfaxi út mánaðarlega og var 8 síður í senn. Margt hefur breyst á 90 árum og ritstjórarnir hafa verið margir og má þar nefna menn eins og Jónas Jónasson frá Hriflu, Helga Valtýs- son, Guðmund G. Hagalín og Eystein Þorvaldsson. Skinfaxi hefur frá upphafi verið málgagn hreyfingarinnar og efni Skinfaxa mótast af stefnu hreyfingar- innar hverju sinni. Stefnan í dag er enn sú sama og efnisval í þessu síðasta blaði aldarinnar er fjölbreytt. Iðnaðar- og viðskiptaráðherra, Finnur Ingólfsson, rifjar upp gamlar og góðar minningar frá árum sínum hjá hreyfingunni. Hann sat um ...sól og sumaryl vill hann breiða yfir land allt tíma í stjórn UMFI og hefur verið fastagestur á öllum Landsmótum UMFÍ frá árinu 1970. Ein af aðal tekjulindum ungmennafélaganna eru Lottó og getraunir. Nýr framkvæmdastjóri hjá íslenskri getspá tók til starfa fyrir stuttu og hann situr fyrir svörum í opnuviðtali. Stjórnarmað- urinn Kristján Yng- varsson rifjar upp gamla grein sem hann skrifaði í Skinfaxa fyrir um tíu árum og við horfum enn þá lengra til baka þegar rifjaðar eru upp skemmtilegar greinar úr gömlum Skinföxum. Pálmi Gíslason og Hafsteinn Þorvaldsson eiga það sameiginlegt að hafa verið formenn UMFÍ og þeir rifja upp ár sín hjá hreyfingunni. Semsagt, sól og sumarylur sem ritstjórn Skinfaxa sendir ungmenna- félögum um allt land í þessu _________________________ síðasta blaði afm- ælisársins. Til hamingju með afmælið. Skinfaxi mótast af stefnu hreyfingar- innar hverju sinni Jóhann Ingi Arnason ritstjóri i I 2

x

Skinfaxi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.