Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.12.1999, Blaðsíða 6

Skinfaxi - 01.12.1999, Blaðsíða 6
Nýr framkvæmdastjóri hjá íslenskri Getspá Verðum að hafa söluvæna vöru Bergsveinn Sampsted er ný- tekin til starfa sem fram- kvæmdastjóri íslenskrar Get- spá og íslenskrar Getrauna. Bergsveinn þekkir vel til fyrirtækisins þar sem hann vann hjá Getspá sem markaðsstjóri í fimm ár á árunum 1989 til 1994. Síðan skipti hann um gír og gerðist markaðs- og þjónustustjóri hjá Europay, sem er umboðsaðili Eurocard og Mastercard, en var svo ráðinn framkvæmdastjóri hjá Getspá eins og áður sagði fyrr á þessu ári. Bergsveinn er 33 ára gamall og er giftur Hrönn Sveinsdóttur en saman eiga þau tvo stráka. Hann er viðskipta- fræðingur að mennt og útskrifaðist með B.S. próf frá Háskóla í Suður-Karolínu. Hans áhugamál þessa dagana er aðallega barnauppeldi en hann gefur sér þó alltaf tíma til að skreppa á skíði og stunda líkamsrækt. En fylgir það ekki framkvæmdastjórastarfinu að spila golf? „Jú, ætli maður verði ekki að fara að snúa sér að því aftur. Ég var mikið í golfinu fyrir nokkrum árum en hef ekki haft nægan tíma til að sinna því á undanförnum árum”. - Er framkvæmdastjórastarfið svipað og þú áttir von á? „Ég bjó að því að hafa unnið hérna áður og vissi nokkuð vel að hverju ég var að ganga. Þetta er lítið fyrirtæki þar sem allir ganga í störf hvers annars og hjálpast að við það sem þarf að gera. Ég held samt að það hafi verið gott fyrir mig að hafa starfað í öðru umhverfi eins og hjá Euro- pay þar sem ég lærði miklu agaðari vinnu- brögð sem ég held að eigi eftir að hjálpa mér sem framkvæm- dastjóra hér.” - í hverju felst starfið? „í rauninni er það í mínum verkahring að halda utan um alla hluti hér innanhúss. Þetta er sölufyrirtæki þar sem allt veltur á því hvernig gengur að selja og ég mun einblína mikið á söluhliðina og leita þar leiða til að auka vinsældir Lottós. Við erum með ákveðnar vörur í höndunum og það er í okkar verkahring að þessar vörur verði ekki úreldar - við verðum að standa vörð um vöruþróun og hafa söluvænar vörur í framtíðinni.” Nú er samkeppnin á þessum mark- aði alltaf að aukast. Það eru komnir spilakassar í hverja sjoppu, skafmiðar af öllum gerðum og ýmislegt fleira. Finnið þið eitthvað fyrir því að salan hafi minnkað hjá ykkur? „Já, salan á bæði Víkingalottóinu og Lottóinu dróst saman á síðasta ári en við höfum náð að bæta við okkur á annan veg eins og með tilkomu Jókersins. Það má eiginlega segja að við höfum unnið upp lægri sölutölur af Lottóinu með Jókernum. Það, ásamt verðhækkunum og hagræð- ingu í rekstri, hefur skilað því að fyrirtækið hefur verið að skila svipaðri afkomu til eignaraðila og undanfarin ár. Það er hins vegar ekki hægt að neita því að það er áhyggjuefni að sala hefur farið minnkandi. Ég vil samt ekki bara kenna því um að samkeppnin á happadrættismarkaðnum sé meiri heldur líka því að framboðið á hinni á ýmiskonar afþreyingu er orðið svo mikið. Það má til dæmis nefna það að þegar Lottóið byrjaði fyrir þrettán árum var bara til ein sjónvarpsstöð, miklu færri veitingahús og annað í þeim dúr. Ég lít svo á að þetta hafi allt sín áhrif.” - Nú er alltaf verið að tala um þetta blessaða góðæri hér á landi. Finnið þið eitthvað fyrir því að almenningur spili V minna þegar hann er með meiri peninga á milli handanna - þá á ég við að fólki finnist það kannski þurfa minna á Lottóvinningi að halda. „Við erum ekki frá því að í góðæri spili fólk minna og þegar illa árar spili fleiri. Sveiflurnar eru ekki miklar en við finnum þó fyrir einhverjum sveiflum en það er kannski erfitt að átta sig á skýringunni hverju sinni.” - Nú var farinn sú leið að bjóða Lottóið í Þegar allt kom til alls var það mun hagstæðara fyrir okkur að semja við Stöð2 6 i

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.