Skinfaxi - 01.12.1999, Page 7
áskrift. Hefur þaö ekki skilað sér vel?
„Askriftin sem var kynnt til leiks í október í
fyrra er mjög sniðug vara. Við sjáum fyrir
okkur í framtíðinni að hún verði okkur mjög
mikilvæg og að við munum ná góðum
árangri í sölu hennar. Við höfum samt ekki
lagt mikla áherslu á áskriftarsöluna að
undanförnu og það er kannski helst vegna
þess að við erum enn að átta okkur á
hvernig hún kemur til með að koma út. Við
trúum því hins vegar að þetta sé ein af
okkar framtíðarvörum og henti mörgum, til
dæmis þeim sem spila með fastar tölur og
vilja alls ekki að það gleymist að lotta. Það
getur komið sér afar illa að gleyma að vera
með ef maður man tölurnar sínar.”
- Er hægt að tala um markhóp hjá ykkur
eöa er það fólk á öllum aldri sem spilar
með?
„Lottó er vara sem höfðar til mjög breiðs
hóps og við höfum stillt þessu þannig upp
að kjarnahópurinn okkar liggi á bilinu 35 til
55 ára. Þeir sem eru á bilinu 25 til 35 eru
meira að stökkva inn öðru hvoru. Ég held
að þetta endurspegli það samfélag sem við
búum í að svona upp úr þrítugu er fólk oft
búið að skuldbinda sig og er að fara út í
stærri og meiri fjárfestingar. Það leiðir til
þess að fólk tekur sénsinn og reynir að
vinna þann stóra í Lottóinu og grynnka á
skuldunum.”
- Hvaða upphæðir er fólk almennt að
kaupa fyrir?
„í Lottóinu er langalgengast að tekinn sé
einn tíu raða seðill en meðaltalið á hvern
einstakling eru 8 raðir og svo taka um 10-
12 prósent Jókerinn líka. í Víkingalottóinu
er ódýrara að vera með en það er það
sama þar að langalgengast er að fólk kaupi
tíu raða seðil.”
- En hverjir eru möguleikarnir á að
hreppa þann stóra?
„Möguleikarnir eru 1/500.000 í Lottóinu en
mun minni möguleikar eru að vinna í
Víkingalottóinu en þar kemur á móti að
potturinn er margfalt stærri. Við finnum það
alveg að þeir sem spila í Víkingalottóinu
vita að það eru mjög litlar líkur á að vinna
en fólk tekur samt sénsinn. Það er alltaf
einhver sem vinnur og það eru sömu líkur
hjá öllum þeim sem eru með hverju sinni.”
- Nú er Lottó þrettán ára og þið hafið frá
Það er alltaf einhver
sem vinnur og það
eru sömu líkur hjá
öllum þeim sem eru
með hverju sinni
upphafi verið með útdráttinn í
Ríkissjónvarpinu en nýlega var sú
ákvörðun tekin að færa Lottóið yfir á
Stöð 2. Af hverju var þessi ákvörðun
tekin?
„Það má segja að þessi vinna hafi farið af
stað í sumar þegar það varð Ijóst að RÚV
ætlaði að flytja sinn
fréttatíma til klukkan sjö.
Við það myndaðist dálítið
rót á markaðnum sem við
urðum að taka tillit til.
Landinn er þannig að
hann horfir á fréttatímann
á báðum stöðvunum og
við vorum komnir í þá
stöðu að útdrátturinn hjá
okkur var á sama tíma og
fréttir á Stöð 2. Þetta varð
til þess að áhorf á þáttinn
okkar minnkaði úr 47% í
minna en 15% og það
voru hlutir sem við urðum
að bregðast við. Við ákváðum því að hefja
viðræður við báða aðila og þá komu inn í
þetta verðviðræður og þegar allt kom til alls
var mun hagstæðara fyrir okkur að vera á
Stöð 2.”
- Lottó verður þá auðvitað í opinni
dagskrá og væntanlega að loknum
fréttum?
„Við verðum inni í fréttatímanum og að
sjálfsögðu í opinni dagskrá.”
- Að lokum, er eitthvað nýtt á döfinni?
„Á nýju ári ætlum við að breyta leiknum
aðeins og bæta inn nýjum vinningsflokki
sem mun hafa í för með sér að það verður
jafnauðvelt að vinna og í Lottó 5/32. Fyrsti
vinningur verður áfram jafnhár en þessi nýi
vinningsflokkur mun verða til þess að fólk
mun vinna oftar. Svo er verið að skoða
ýmislegt í sambandi við Internetið sem
verður bara að koma í Ijós á næstu
mánuðum.”
7