Skinfaxi - 01.04.2001, Blaðsíða 20
Björn Ármann Ólafsson formaður ÚÍA
Er Landsmótið lyftistöng fyrir íþróttalífið
á Austurlandi?
,,Já, ég held það. Ég reikna með því að það
verði 190 manns sem keppa fyrir hönd UÍA
á mótinu. Við erum búin að vera að reyna
að ná saman grunnliði í frjálsum íþróttum í
nokkur ár. Við komum á fót úrvalshóp ÚÍA í
frjálsum íþróttum sem hefur verið litið til á
landsvfsu því þetta er eina Héraðs-
sambandið sem hefur staðið að því. Þetta
voru ungir krakkar þá og eru jú ung enþá.
Sumir eru að nálgast tvítugt og alveg niður
í fimmtán, sextán ára. Þetta er uppistaðan í
okkar keppnisliði núna. Ég held að Lands-
mótið hafi gert það að verkum að þetta var
gert og þessir krakkar væru ekki í þessu í
dag ef þetta væri ekki framundan, ég held
að það sé alveg Ijóst. Það er náttúrulega
verið að keyra hinar íþróttirnar líka upp í
dag. Við erum líka að halda námskeið. Við
vorum að halda dómaranámskeið í frjálsum
íþróttum, ég hefði að vísu viljað sjá fleirri
þáttakendur en það voru þó tlu manns sem
að tóku þátt og fengu dómararéttindi í
frtjálsum íþróttum. Þannig að ég held að
þetta hafi góð áhrif á íþróttalífið, fyrir utan
auðvitað aðstöðuna sem er að byggjast
upp og á eftir að virka ómælt inn í
íþróttalífið í framtíðinni. Hingað koma mót
sem aldrei hafa komið hingað áður og nú
þegar er byrjað að vinna að því innan ÚÍA
að ná hingað meistaramótinu í frjálsum
íþróttum. Þannig að ég held að við séum
komin á kortið. Ég get nefnt eitt dæmi í
viðbót um þetta. Við höfum verið að fá
merka þjálfara hingað til að þjálfa úrvals-
hópinn okkar meðal annarra Gísla Sigurðs-
son, Gunnar Þál Jóakimsson og fleiri. Þeir
hafa sagt eftir að hafa komið inn á völlinn
eftir að gerviefnið var lagt á hann, að
völlurinn, umgjörðin og allt það sem þarna
er verði þess valdandi að menn vilji koma
hingað bæði til æfinga og keppni. Gunnar
Páll sem þjálfar hjá ÍR, sagði það að hann
myndi kynna þetta sem stað til að koma á
því þessi völlur hefði það sem sennilega
enginn völlur hefði á íslandi, samanburð við
erlenda aðstöðu, bara út af umgjörðinni."
Kemur UÍA sterkt til leiks í Landsmóts-
keppninni sjálfri?
,,Já ég held það. Stefnan er að ná allavega
þriðja sætinu í heildarkeppninni og vonandi
náum við þvl. Við erum með mjög sterk lið
á mörgum sviðum. Frjálsíþróttaliðið er
sterkt. Þessir krakkar hafa verið að keppa
við þá bestu í landinu á meistaramótum og
hafa þar verið í keppni um verðlaunasæti
þannig að ég held að við komum með mjög
sterkt lið til leiks.“
Hvaöa fleiri greinar getur þú séö fyrir
þér þar sem þiö verðið í toppbaráttunni?
,,Ég reikna náttúrulega með því að við
vinnum blakið bæði í karla og kvenna
flokki. Handboltinn hefur nú ekki verið
stundaður mikið og fast hérna en það er
samt gamall kjarni hérna þannig að það
gæti alveg gengið ágætlega þar. íþróttir
fatlaðra sem eru til stiga núna. Við eigum
mjög harðsnúið lið þar þannig að ég býst
við að þeir skili góðu og hali inn stig.
Fótboltinn er alltaf spurningarmerki og
hefur verið á Landsmótum þannig að menn
gætu bæði fengið gott og slæmt út úr því.
Við stóðum okkur vel í skákinni síðast og
ég á alveg eins von á að það geti gengið
vel núna. Við eigum mjög harðsnúið Bridge
lið sem gæti halað inn stig og þannig mætti
áfram telja. Ég held að við eigum bara
nokkuð harsnúið lið í flestum íþrótta-
greinum."
Austurlandiö einkennist af sjávarþorp-
um og dreiföri byggö, hvaö meö starfs-
íþróttirnar?
„Jú, jú, við komum til með að keppa í
línubeitingu á Fáskrúðsfirði og það er nú
þegar verið að leita að þeim bestu sem við
eigum hér á svæðinu. Ég hef ekki trú á öðru
en við náum góðu þar því að hér eru
þaulvanir beitingamenn sem standa sig vel.
Svo er það dráttarvélarakstur. Ég hef ekki
trú á öðru heldur en að þetta landbúnaðar-
hérað skili okkur einhverjum góðum þar
inn. Nú stafsetningu, það eru auðvitað
skólarnir og spurningin um þá. Síðan er
það gróðursetning, við keppum í henni og
ég held að aðrir eigi ekki betri menn í því
og þjálfaðri heldur en einmitt við. Svo er
það jurtagreining, þar höfum við nú átt
vinningshafa oft og iðulega þannig að ég
held að við komum mjög sterkir inn í
starfsíþróttirnar. Fyrir utan það að upphafið
að starfsíþróttum er sennilega á
Austurlandi. Fyrsta skráða heimild um
keppni í starfsíþróttum eða „vinnubrögðum"
eins og þær voru kallaðar þá eru frá
Landsmótinu á Eiðum 1952.''
Hverjar eru væntingar ykkar til mótsins?
„Þær eru fyrst og fremst að það takist vel til
við að halda þessu gangandi. Við byggjum
þetta upp á því að við hugsum fyrst og
fremst um íþróttirnar og framkvæmd
íþróttamótsins. Þjónustuaðilar á svæðinu
hugsa um annað. Markaðsstofa Austur-
lands sér um tjaldstæði fyrir almenning.
Þeir aðilar sem eru með veitingasölu sjá
um veitingasöluna í kringum Landsmótið. í
einhverjum tilfellum er það eitthvert
íþróttafélag, en gegnumsneitt eru það þeir
aðilar. Öll þjónusta í sambandi við skemm-
tanir verður í höndum þeirra fyrirtækja sem
eru á staðnum að undanskilinni kvöldvöku
sem að við stöndum að. Svo er það eitt
aðalsmerki sem að við höfum lagt fyrir og
það er vímuefni og vímuefnavarnir. Við
erum búin að setja upp vímuvarnarstefnu
fyrir Landsmótið sem að byggir á því að
það verða ekki notuð vímuefni af neinu tagi
hvorki lögleg né ólögleg á Landsmótinu. Við
ætlum að bjóða upp á þjónustu fyrir fólk
sem vill nota tækifærið og t.d. hætta að
reykja. Starfsmenn frá Heilbrigðisstofnun
Austurlands verður tilbúið að aðstoða fólk
til að gera það ef það vil nota þetta tækifæri
til þess.“
Viltu spá einhverju um úrslit mótsins?
„Ja, ég veit það ekki, ætli það verði ekki
einhverjar breytingar núna. Ætli HSK verði
ekki að sætta sig við annað sætið núna.
Það eru náttúrulega þessi stóru félög sem
keppa um toppinn þannig að það er
kannski erfitt um það að segja og spá því
öðuruvísi en að það kemur nýr aðili sem
tekur toppinn."
SkjáVflrp
20