Skinfaxi

Årgang

Skinfaxi - 01.12.2002, Side 4

Skinfaxi - 01.12.2002, Side 4
Jólagleði og skötuveisla Jólafréttir frá Ungmenna- félagi Stokkseyrar. Skötuveislan Okkar árlega skötuveisla verður á Þorláksmessu í íþróttahúsinu á Stokkseyri boðið verður upp á vestfirska og sunnlenska skötu , hamsa hnoðmör, saltfisk, rófur, rúgbrauð, og kartöflur. Öllum má ljóst vera að hér verður mikið um dýrðir og um að gera fyrir fjölskylduna og vinnuhópa að koma og borða saman og eiga notalega stund mitt í jólaösinni. Maturinn verður á hóflegu verði eða 1500 krónur á manninn ,6-12 ára borga 1000 krónur og frítt verður fyrir 6 ára og yngri í fylgd með fullorðnum. Borðapantanir eru hjá Gunnu Jónu í síma 683-3013 og Imbu í síma 899-1594. Jólasveinar Jólasveinarnir verða á ferðinni á aðfangadag eins og undanfarin ár og verður tekið á móti vitnisburði frá foreldrum í íþróttahúsinu á Stokkseyri á Þorláksmessu á klukkan 18:00 og 19:00. Ungmennafélag Stokkseyrar óskar íþróttafólki og öðrum landsmönnum gleðilegra jóla og ánæjulegs nýs árs og þökkum samstarfið á liðnum árum. Jólastarf sunddeildar Skallagríms Sunddeild Skallagríms hefur í mörg ár verið hvað virkust í desember. Ymislegt gert fyrir krakkana og fólkið í bænum til að stytta stundirnar fram að jólum. Eitt af því fyrst sem gert er til skemmtunar er jólaföndrið. Þá hittast allir krakkarnir sem hafa verið að æfa og föndra eitthvað skemmtilegt. Englar, snjókarlar, jólatré, jólasveinar eru bara nokkur dæmi um það sem gert hefur verið á þessum föndurdögum. Krakkarnir taka einnig með sér smákökur og drykk til að seðja hungrið sem ávallt lætur á sér bera við föndurvinnu. Foreldrarnir taka virkan þátt í föndrinu og hjálpa þeim sem á því þurfa að halda svo allt gangi sem best fyrir sig. Afraksturinn af þessari samkomu endar svo oft í jólapökkum til ömmu og afa eða annarra ættingja sem finnst gaman að fá heimatilbúnar jólagjafir. Sunddeildin hefur á síðastliðnum árum tekið að sér að sækja og dreifa jólapósti í bænum. Þá er fyrst gengið í hvert einasta hús og safnað kortum hjá íbúum bæjarins og svo er farið í það að flokka. Tveim til þrem dögum fyrir jól hittast svo allir krakkarnir og klæða sig upp sem jólasveina og halda í hópum út í bæinn til að færa Borgnesingum jólakortin sín og gotterí í leiðinni. Þetta er eitt af því sem krökkunum í bænum finnst mjög skemmtilegt, að fá þessa litlu jólasveina í heimsókn. Oft er tekið lagið í heimsóknunum og gerir það ferðina bara enn skemmtilegri. Einnig hefur sunddeildin gengið í hús í desember og selt friðarljós í fjáröflunarskyni. Þá er um leið minnt á jólapóstinn svo að fólk gleymi okkur örugglega ekki. I einhverjum af síðasta tímanum fyrir jólafrí er svo sérstök jólaæfing þar sem krakkarnir synda með logandi kerti og gert ýmislegt annað skemmtilegt. Það þykir nefnilega svo hátíðlegt þegar slökkt er í sundlauginni og kertaljósin færast hægt og sígandi yfir laugina. Þetta er nokkurn veginn megnið af því sem sunddeildin í Borgarnesi leggur stund á í desember en auðvitað er aðalmarkmiðið að hafa gaman að því að æfa og leggja sig fram. Hallbera Eiríksdóttir Umf. Baldur í Hraungerðishreppi brallar ýmislegt um jól og áramót. Litlu jólin eru haldin hátíðleg í Þingborgarskóla eins og vera ber, en það er hefð í þeim skóla að setja upp vönduð leikrit fyrir það tilefni. Um kvöldið er foreldrum og aðstandendum boðið að koma á sýningarnar og hafa ungmennafélagið og skólinn staðið saman að þeirri samkomu, sem er vel sótt og skemmtileg. Félagið hefur samstarf við kvenfélagið í sveitinni um jólasveinaheimsóknir á bæina á Þorlák- smessu þar sem smáræði er gaukað að góðum krökkum og sungið af list á útidyratröppunum. Á þrettándanum stendur ungmennafélagið svo fyrir brennu og skemmtun þar sem ýmis skemmtilegheit eru höfð í frammi. En þessi tími einkennist líka af undirbúningi stórra verkefna í byrjun ársins, aðalfundarins sem haldinn er í janúar og síðast en ekki síst er það þorrablótsundirbúningur sem þegar er hafinn. Það er eitt stærsta verkefni félagsins og er auðvitað búið að ákveða dag og ráða hljómsveit. Síðan er það revían sem þarf að semja og setja upp fyrir blótið og eru ungmennafélagar nú að brjóta heilann um hvað helst bar til tíðinda á árinu sem er að líða og leita að spaugilegu hliðunum á mannlífinu í sveitinni og nágrenni. Með kveðju, Halldóra Gunnarsdóttir Skötuveisla hjá Vöku Umf. Vaka stendur fyrir skötu veislu í Þjórsárveri á Þorláks- messu, milli kl.l2:00 og 13:00. Sem endranær verður margt á boðstólum og ættu allir að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Verði verður stillt í hóf: Full- orðnir kr. 1000.-, 6-12 ára kr. 500.-Yngri börn fá frítt. Skötu- veislan í Þjórsárveri er kær- komin hvíld frá jólaamstrinu, mætum sem flest og eigum notalega samverustund fyrir endasprettinn í jólaundirbún- ingnum.

x

Skinfaxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.