Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.12.2002, Blaðsíða 20

Skinfaxi - 01.12.2002, Blaðsíða 20
Aímælisbörnin UMSB og UMSK Valdimar Leó Fríðriksson formaður UMSK Áttatíu ára gamalt en síungt og öflugt félag Ungmennasamband Kjalarnesþings hélt upp á stórafmæli á haustdögum. En 4. október sl. varð sambandið 80 ára og var mikið um dýrðir. Sambandið á sér langa og merkilega sögu. Skinfaxi ræddi við Valdimar Leó Friðriksson, formann UMSK, um sambandið og stöðu íþrótta- og æskulýðsmála í landinu. Texti: Skapti Örn Jónsson Myndir: Sigurjón Ragnar Ef þú segir mér aðeins frá sjálfum þér, hefur þú starfað lengi fyrir ungmennahreyfinguna? „Ég er menntaður í fiskeldisfræði og stjórnmálafræði," segir Valdimar Leó og heldur áfram, „Hvað félagsstörf varðar þá byrjaði ég sem formaður fyrir handknattleiksfélag Akraness 1983. Þá var ég Eramkvæmdastjóri UMSE 1993-1994 og framkvæmdastjóri Knattspyrnudeildar Aftureldingar 1994- 1996. í dag er ég framkvæmdastjóri aðalstjórnar Aftureldingar og hef verið frá 1994. Þetta er orðinn langur tími og hlýtur að vera íslandsmet. Samhliða þessu starfa ég á sambýli fyrir einhverfa," sagði Valdimar Leó. Hvað var gert í tilefni afmælisins? „Það var haldin mikil veisla í sal Breiðabliks í Smáranum. í samráði við sundstaðina á sambandssvæðinu og ÍSÍ verkefnið „ísland á iði“ var boðið frítt í sund í einn dag. Hið árlega skólahlaup UMSK var haldið og í tilefni afmælisins fengu allir þátttakendur viðurkenningar. Þá létum búa til nýjan hátíðarfána og könnur merktar sambandinu," sagði Valdimar Leó. Hvernig hefur sambandið elst og hvað hefur breyst? „Stofnfélögin voru einungis 4 nú eru aðildarfélögin 26 með 25.100 félagsmenn innanborðs. Áður starfaði það í dreifbýlinu umhverfis Reykjavík en nú eru þetta orðin þéttbýl sveitarfélög. Aðildarfélögin eru mjög fjölmenn og fjölbreytileg og sinna eingöngu íþróttastarfi í dag," sagði Valdimar Leó. „Sambandið gætir hagsmuna aðildarfélaganna gagnvart UMFÍ, ÍSÍ og sérsamböndum þess,“ sagði Valdimar Leó þegar hann var spurður að því hvaða þýðingu sambandið hefði og hvaða hlutverki það gegnir. „Sambandið miðlar einnig upplýsingum og hvetur félögin til að tileinka sér það besta hvert hjá

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.