Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.12.2002, Blaðsíða 15

Skinfaxi - 01.12.2002, Blaðsíða 15
Ungmennafélagi genr það gott í Noregi Katrín Jónsdóttir knattspyrnukona og læknanemi Þess vegna ákvað ég að leggja skóna á hilluna Ein besta knattspyrnukona landsins og fyrrverandi leikmaður Breiðabliks, Katrín Jónsdóttir landsliðskona og atvinnumaður með Kolbotn í Noregi, hefur nú ákveðið að leggja skóna á hilluna. Skinfaxi hafði samband við Katrínu og komst að því hvers vegna. Þá segir Katrín einnig frá góðu gengi kvennalandsliðsins. Texti: Skapti Örn Jónsson Myndir: Sigurjón Ragnar Segðu mér aðeins frá sjálfri þér, hvenær þú byrjaðir að stunda knattspyrnu og með hvaða liðum þú hefur leikið? „Ég er 25 ára og bý í Noregi þar sem ég er á 5, ári í læknisfræði. Ég byrjaði í fótbolta 8 ára gömul með liði sem heitir Koll (Noregi). Síðan flutti ég til íslands 11 ára gömul og spilaði með Breiðabliki til 1997 fyrir utan eitt ár sem ég spilaði með Stjörnunni. Prá haustinu 1997 hef ég spilað með Kolbotn í Noregi." Nú ertu atvinnumaður í Noregi en ert líka þar við nám. Hvernig hefur dvölin verið og hvernig sækist námið? „Mér líkar mjög vel í Noregi og er ekki á leið heim á næstunni (er komin með norskan kærasta). Það er samt erfitt að segja. Eina stundina ætla ég heim og þá næstu vil ég vera hér. Tíminn verður bara að leiða það í ljós. Námið hefur gengið vel hingað til en ég finn núna að ég hef lítinn tíma til að einbeita mér að fótboltanum eins og ég vildi gera. Þess vegna legg ég skóna á hilluna núna." Hvernig er að vera Noregsmeistari? Er mikill munur á deildunum hér heima og þarna ytra? „Það var frábært að verða Noregsmeistari. Við vorum með mjög gott lið og ég vil meina að við höfum verið með eitt besta lið Evrópu á síðasta tímabili. Það er virkilega gaman að hafa verið hluti af því. Það er þó nokkuð mikill munur á þessum 2 deildum. Knattspyrnan er hraðari hér í Noregi og hvert lið hefur fleiri góðum leikmönnum á að skipa enn á íslandi. Það eru samt leikmenn heima á íslandi sem myndu gera það mjög gott hérna. Það hefur landsliðið sýnt og sannað." Hverjir eru þínir mestu sigrar og töp á knattspyrnuvellin- um í gegnum tíðina? „Ég man lítið eftir töpum!! En það sem er eftirminnilegast er jafntefli landsliðsins við Bandaríkin 2000 og svo hefur þetta ár verið frábært. Landsliðið hefur unnið þjóðir eins og Ítalíu, Spán og gert jafntefli við Rússa og Englendinga sem er góður árangur. Svo má ekki gleyma Noregsmeistaratitlinum sem er mjög gaman að vinna." Hvað ætlar þú að gera hvað varðar knattspyrnu næsta sumar? ,,Ég hef ákveðið að leggja skóna á hilluna. Þó svo ég viðurkenni fúslega að ég viti að það eigi eftir að verða erfitt." Hvað með landsliðið? „Ég hef mikla trú á lanðsliðinu. Ef haldið verður eins vel utan um þetta og viljinn er fyrir hendi, sem ég veit að er þar, er allt hægt. Ég vona að Jörundur haldi áfram með landsliðið. Hann hefur virkilega aukið sjálfstraust okkar og haft trú á okkur. Það að við fáum leyfi til að spila sóknarbolta er mjög mikilvægt að mínu mati.'' Hvernig er staða kvennaknattspyrnunnar á íslandi? „Hún er góð, við erum í 9. sæti á lista yfir bestu knattspyrnuþjóðir í Evrópu. Það verður bara að halda áfram og hafa trú á því að við getum þetta. Það er líka mjög gott að sjá að það eru svo margar ungar og efnilegar knattspyrnukonur á leið upp." Eru einhverjir peningar i spilinu í atvinnumennskunni í Noregi? „Það er mismunandi. Kolbotn hefur borgað sínum leikmönnum en það er mismikið. Aðrir klúbbar hafa ekki borgað eins mikið. Þetta eru ekki miklir peningar, ég tek t.d. námslán. í viðbót við þetta fá norsku landsliðsstelpurnar styrk frá Norska knattspyrnusambandinu.'1

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.