Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.12.2002, Blaðsíða 23

Skinfaxi - 01.12.2002, Blaðsíða 23
/ Valdimar Gunnarsson fræðslustjóri UMFI skrifar Miklir möguleikar fyrir ungt fólk UMFI er aðili að norrænum samtökum sem kallast Nordisk Samorganisation for Ungdomsarbejde - NSU. Innan þessara samtaka eru 19 aðildarsamtölc á öllum Norðurlöndunum auk Suður Slesvíkur. Fjöldi meðlima er um 2.3 milljónir. íslendingar hafa farið með forystu í samtölcunum síðustu árin. Björn B. Jónsson, formaður UMFÍ, gengdi starfi formanns í fjögur ár en í vor var Anna R. Möller, stjórnarmaður UMFÍ, kosinn formaður til tveggja ára. Skrifstofa samtakanna er í Þjónustumiðstöð UMFÍ og er Valdimar Gunnarsson framkvæmdastjóri. Texti: Valdimar Gunnarsson Mynd: Sigurjón Ragnar Markmið NSU eru eftirfarandi: Að styrkja samvinnu milli ópólitískra ungmennasam- taka á Norðurlöndunum og veita upplýs- ingar um þau verkefni sem unnið er að hjá aðildarsamtökunum. Samtökin innan NSU hafa mismunandi tilgang og markmið og eru að mörgu leyti mjög ólík. Tvenn samtök innan NSU eru mjög lík að uppbyggingu og með sömu áherslur og UMFI þ.e. íþróttir, menningu og umhverfi. Þetta eru DGI í Danmörku og SDU í Suður-Slesvik. Hin samtökin innan NSU má segja að séu eins ólík og þau eru mörg að undanskild- um 5 samtökum sem nefnast 4H. Sum verkefni samtakanna eru sniðin að áhuga- málum ákveðinna aðildarsamtaka en svo eru önnur verkefni sem henta öllum sama á hvað áhugasviði þau eru. Þar má nefna að Nordisklejr er verkefni 4H samtakanna en ungmennavikan er verkefni sem öll samtökin sameinast um þátttöku í. Verkefni NSU eru margvísleg. Samtökin standa fyrir ungmennavikum einu sinni á ári þar sem ungt fólk frá öllum aðildarsam- tökunum koma saman í eina viku og vinna að margvíslegum verkefnum en hver vika hefur sitt ákveðna þema. Síðastliðið sumar var vikan haldin í Svíþjóð og 15 ungmenn frá íslandi tóku þar þátt. Næsta ungmenna- vika verður svo haldin í Suður-Slesvík í lok júní 2003 og verður þema vikunnar „víkmgar", Nordisk-lejr eru ungmennabúðir sem ætlaðar eru fyrir ungt fólk í félagskapnum 4H. Þar fá þátttakendur tækifæri til að kynnast hvernig 4H starfið er í öðrum löndum. Nordisk konsulentkonference er haldin annað hvert ár og er ætluð leiðtogum og leiðbeinendum innan 4H félaganna. Þar er tekið fyrir eitt ákveðið efni sem brennur á mönnum. Nordisk temaseminar er haldið annað hvert ár og þá það ár sem ekki er haldinn ársfundur samtakanna. Þar eru tekin til umræðu ákveðin þemu sem á einhvern hátt tengjast aðildarsamtökunum eða okkar sameiginlega arfi þ.e. þeim norræna. Ráðstefna um líf í sveitum er haldin á hverju ári þar sem efni ráðstefnunnar er tengt lífi fólks í sveitum. Leiðtogaþjálfun. Það nýjasta sem samtökin hafa verið að brydda uppá er leiðtogaþjálf- un. í sumar var fyrsta námskeiðið haldið hér á íslandi á Gufuskálum á Snæfellsnesi. Námskeiðið var skipulagt og undirbúið af ungmennum frá íslandi, Danmörku, Svíþjóð og Finnlandi ásamt framkvæmdastjóra NSU. Þátttakendur voru 33 og þar af 3 frá íslandi. Námskeiðið stóð yfir í 7 daga og tókst í alla staði mjög vel. Nú þegar hefur verið ákveðið að næsta námskeið verður einnig haldið á íslandi næsta sumar. Hvernig geta aðildarfélög UMFÍ nýtt sér starfið í NSU? Að taka þátt í norræn- um samstarfsverkefnum er mjög félagslega þroskandi. Þarna hittist ungt fólk allstaðar af Norðurlöndunum með svipuð áhugamál og með það að leiðarljósi að kynnast og starfa með þátttakendum frá öðrum löndum. Þátt- taka er opin öllu ungu fólki á aldrinum 14 - 25 ára . Þarna vinna ungmennin að verk- efhurn sem eru mjög þroskandi og kynnast um leið ungu fólki frá öðrum löndum og oft myndast kunningskapur sem varir alla ævi. Ungmennafélögum stendur til boða að taka þátt í öllum verkefiium sem eru haldin i nafni NSU. Það er skylda okkar sem erum í fomvari fyrir félagasamtök að sjá til þess að endur- nýjun verði innan stjórnar félagsins. Enginn er fæddur með þessa kunnáttu að geta stýrt félagasamtökum. Þekkingarinnar verða menn að afla með því að fá tækifæri til að taka þátt í störfum sem efla þá og þroska félagslega. Það er okkar að sjá til þess að ungt fólk fái tækifæri, reynslu og öðlast kunnáttu til þess að taka að sér krefjandi störf innan félagsins. Þarna er því kjörið tækifæri fyrir félögin að senda ungt og upprennandi félagsmálafólk til þátttöku í svona starfi. Þetta skilar sér margfalt til baka í öflugara og hæfara fólki sem meiri líkur eru á að skili sér inn í stjórnir félaganna. Nú stendur til að fjölmenna á ungmenna- vikuna í Slesvík næsta sumar og hafa mótshaldarar farið fram á aðstoð okkar við undirbúning og þar á meðal leitað eftir tilsögn okkar í glímu. Fljótlega upp úr áramótunum fara að berast upplýsingar um ungmennavikuna og önnur verkefni á heimasíðu UMFÍ www.umfi.is og heimasíðu NSU www.nsu.is. Þeir sem áhuga hafa á þátttöku eða vantar betri upplýsingar geta leitað til þjónustumið- stöðvar UMFÍ.

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.