Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.12.2002, Blaðsíða 17

Skinfaxi - 01.12.2002, Blaðsíða 17
Árni Gautur Arason Fjölmiðlar hafa fjallað töluvert um áhuga ýmissa stórliða á meginlandi Evrópu á þér. Hvað er til í þessum fréttum? „Það hafa verið einhverjar vangaveltur í fjölmiðlum en sjálfur veit ég ekkert hvað er til í þessu. Ég spái ósköp lítið í þetta fyrr en það kemur eitthvert tilboð." Hvaða áhuga hefur þú á að færa þig um set og hvar langar þig til þess að leika? „Hef það mjög fmt í Rosenborg og líður jög vel, en efþað kæmi eitthvað spennandi tilboð þá myndi ég sjálfsagt hugsa málið vandlega. Gæti verið gaman að spila í Englandi, Spáni, Ítalíu, Þýskalandi eða Frakklandi." En Rosenborg vill hafa þig áfram og þeir hafa boðið þér nýjan samning. Ætlar þú að skrifa undir hann og hvað er hann langur? „Þeir eru búnir að bjóða mér nýjan samning en ég er ekki búinn að ákveða hvað ég geri. Reikna með að við ræðum betur saman í janúar." Þetta hlýtur að sýna vel traust forráða- manna félagsins á þér. En þjálfarinn og félagið hafa verið undir töluverðum þrýstingi að setja einn efnilegasta markvörð Noregs í markið og þig á bekkinn? „Fjölmiðlarnir hafa kannski verið að velta sér upp úr þessu en ég spái lítið í þetta og reyni frekar að einbeita mér að því að spila sem best þannig að þeir fái enga ástæðu til að setja mig á bekkinn. Það er hörð samkeppni um markmanns- stöðuna eins og aðrar stöður í liðinu og þannig á þetta náttúrulega að vera í góðu liði." Hvað getur þú sagt mér af islenska landsliðinu - eigum við einhvern möguleika að komast í úrslitakeppni EM 2004? „Stemmningin í liðinu er mjög góð eins og venjulega og við teljum okkur geta barist við Skotana um annað sætið í riðlinum. Draumurinn er að sjálfsögðu að komast einhvern tímann í úrslitakeppni en við megum ekki gleyma að við erum mjög lítil þjóð þannig að það þarf allt að ganga upp ef við eigum að eiga einhverja möguleika." Hvernig metur þú stöðuna í dag í EM riðlunum, eigum við enn möguleika að komast upp úr honum? „Það voru vissulega vonbrigði að tapa fyrir Skotunum en það er fullt af leikjum eftir og það getur allt gerst ennþá." Nú hefur verið töluverð neikvæð umræða í kringum landsliði - hvernig takið þið leikmenn slíkri umfjöllun í fjölmiðlum? „Þar sem ég bý úti hef ég ekki getað fylgst með allri umræðunni en vissulega hefúr maður stundum orðið var við vissa neikvæðni. Við verðum náttúru- lega að þola gagnrýni þegar það á við en það verður þá að vera eitthvað vit í henni og hún má ekki ganga út í öfgar eins og gerst hefur hjá vissum fjölmiðlum. Annars reynum við leikmennirnir alltaf að einbeita okkur að því sem við eigum að gera á leikvellinum og ég get lofað því að við leggjum okkur alltaf 100% fram þegar við spilum fyrir íslands hönd." En hvað ætlar Árni síðan að eyða jólunum og hver er uppáhalds- jólamaturinn? „Ég verð á íslandi á jólunum og hlakka til þess að komast í hangikjötið hjá ömmu, það er ómissandi," segir þessi frábæri knattspyrnumaður sem mun sjálfsagt ýta öllum umboðsmönnum til hliðar og setjast sjálfur við borðið sem nýútskrifaður lögfræðingur og semja við Rosenborg að nýju í janúar á næsta ári. 'Við verðum náttúrulega að þola gagnrýni þegar það á við en það verður þá að vera eitthvað vit í henni og hún má ekki ganga út í öfgar eins og gerst hefur hjá vissum fjölmiðlum' - Árni Gautur

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.