Skinfaxi - 01.12.2002, Síða 7
Stuttar fiéttir Stuttai fiéttii Stuttai fiéttii
Nám í íþróttaháskóla í
Danmörku
Á síðustu árum hefur alltaf ver-
ið erfiðara og erfiðara að fá
menntaða þjálfara til starfa. Til
þess að aðstoða félögin í þessu
hefur UMFÍ ákveðið að styrkja
4 ungmenni til 6 mánaða náms
við íþróttalýðháskólann í Sön-
derborg í Danmörku. Valdimar
Gunnarsson fræðslustjóri
UMFÍ fór í heimsókn í skólann
og náðst hafa góðir samningar
um að taka við íslenskum ung-
mennum til náms þar næstu
árin og mun UMFÍ styrkja
þessar ferðir. Nú eftir áramót
munu fyrstu fjögur ungmennin
fara utan og dvelja þar fram í
júní. Þetta á eflaust eftir að
verða góð vítamínsprauta fyrir
þau félög sem fá þessi ung-
menni til starfa eftir slíkt nám.
Leiðtogaþjálfun
leiðtogaskólans
Tuttugu nemendur Leiðtoga-
skólans sátu í nóvember fyrri
hluta leiðtogaþjálfunarnám-
skeiðs sem haldið var í Þjón-
ustumiðstöð UMFÍ. Seinni hluti
námskeiðsins verður haldinn í
febrúar. Nemendurnir eru víðs
vegar af landinu, bæði úr ung-
mennafélagshreyfingunni, frá
sveitarfélögum og öðrum fé-
lagasamtökum. Fyrirlesarar í
þessum hluta námskeiðsins
hafa verið Guðrún Bachman,
Gísli Blöndal, Jóhann Ingi
Gunnarsson og Rannveig Ein-
arsdóttir. Fyrirlestrarnir hafa
fjallað um framkomu, fjölmið-
la, ræðulist, leiðtoga og hlut-
verk þeirra. Margt hefur verið
til gamans gert á námskeiðinu,
farið á skauta, í skotkeppni,
karaoke, ýmsa leiki og verk-
efni. Karaoke keppnin var æsi-
spennandi og söngvararnir
hver öðrum betri.
Formannanámskeið
Leiðtogaskólans.
Formannanámskeið Leiðtoga-
skólans var haldið í byrjun
nóvember. Farið var yfir hlut-
verk formanna í félögum.
Fyrirlesarar á námskeiðinu
voru margir þeim sömu og í
leiðtogaþjálfuninni. Fimmtán
nemendur sátu námskeiðið.
Farið var í ýmsa afþreyingu og
leiki og keppni á milli liða.
Eftir áramót verða héraðssam-
bönd heimsótt með formanna-
námskeiðið.
Styrkur til tölvukaupa
Ungmennafélag íslands mun
styrkja hvert héraðssamband
og ungmennafélag um kr.
10.000 til tölvukaupa. Styrkur-
inn er veittur um leið og
samstarf við ATV er kynnt en
náðst hafa samningar við ATV
um hagstætt verð á tölvubún-
aði fyrir hreyfinguna. Tilboðið
gildir fyrir héraðssambönd,
ungmennafélög, deildir og ráð
innan þeirra, sem og alla stjórn-
armenn í hreyfingunni. Styrk-
urinn nær þó eingöngu til hér-
aðssambanda og ungmenna-
félaga og getur því numið allt
að tæpum þrem milljónum
króna. I þessu samstarfi er
boðið upp á ýmsan tölvubúnað
sem ætti að nýtast félögum vel.
Má þar nefna fartölvur, borð-
tölvur, stafrænar myndavélar,
prentara, skanna og ýmsan
arvnan smábúnað. Nánari upp-
lýsingar má sjá um samstafið á
heimasíðu UMFÍ, auk þess sem
bæklingi verður dreift á næstu
dögum og þá hefur verið
sendur út tölvupóstur á héraðs-
sambönd og ungmennafélög.
Einnig er í þessu tölublaði Skin-
faxa viðtal við Tryggva Þor-
steinsson sölustjóra ATV.
Play the Game
Play the Game ráðstefnan var
haldin í Kaupmannahöfn á
dögunum. Ráðstefnan var
haldin af DGI, ISCA og alþjóð-
legum samtökum blaðamanna.
Danski menntamálaráðherrann
setti ráðstefnuna og lýsti yfir
ánægju sinni með fjölda gesta,
viðfangsefni ráðstefnunar og
starf almenningsíþróttasam-
taka. Alls sóttu um 300 blaða-
menn, fulltrúar íþróttasamtaka
og háskóla um allan heim
ráðstefnuna. Ráðstefnan stóð í
fimm daga og fluttir voru um
60 fyrirlestrar. Viðfangsefni
ráðstefnunnar voru íþróttir og
fjölmiðlar, íþróttir og stjórn-
mál, valdabarátta í íþróttum,
fjármögnun íþrótta, konur í
íþróttum og munur á afreks-
íþróttum og almenningsíþrótt-
um. Fyrirlestrarnir voru margir
hverjir mjög áhugaverðir og
beinskeyttir. M.a. kom fram
hörð gagnrýni á Alþjóðlega
knattspyrnusambandið (FIFA)
og Alþjóðlegu Olympíunefnd-
ina, fyrir spillingu í starfi. Þar
fór fremstur í flokki enski
rannsóknarblaðamaðurinn
Andrew Jennings. Páll Guð-
mundsson upplýsingastjóri
UMFÍ sótti ráðstefnuna.
Formannfundir
Formaður UMFÍ og starfsmenn
hafa að undanförnu setið for-
mannafundi hjá hérðaðssam-
böndum víða um land. Meðal
annars hafa verið heimsóttir
formannafundir hjá UMSB,
HSÞ, HSK, USVS og auk þess
nokkur önnur héraðssambönd
og ungmennafélög verið heim-
sótt. Á þessum fundum hefur
verið góð umræða, meðal
annars um starf félaganna auk
þess sem félögum hafa verið
kynnt þau verkefni sem eru í
gangi hjá UMFÍ þessa dagana.
Hættum að reykja
Á dögunum var undirritaður
samstarfssamningur milli
UMFÍ og Jóhanns G. Jóhanns-
sonar um hvatningarátakið
HÆTTUM AÐ REYKJA. Nú
þegar hafa nokkur sveitarfélög,
fyrirtæki og samtök ákveðið að
koma að verkefninu. Verkefnið
snýst meðal annars um að
koma í veg fyrir reykingar
barna og unglinga, hvetja þá
sem að reykja til að hætta því
og taka upp sparnað sem
nemur reykingunum. I tengsl-
um við verkefnið mun m.a.
koma út geisladiskur með
antireykingalögum Jóhanns G.
sem ungmennafélögum mun
standa til boða að selja í
endursölu til fjáröflunar. Þá
verður tekið þátt í dagskrá á
Reyklausum degi í vor, unnið
að getraunasamkeppni, og
unnið með lög og texta í
tengslum við heimsóknir UMFI
í skóla landsins í vor. Viðtal er
við Jóhann í þessu tölublaði
Skinfaxa.
4.000 göngumenn á
fjöll
Tæplega 4000 göngugarpar
tóku þátt í gönguverkefni
UMFÍ Fjölskyldan á fjallið. Nú
hefur verið lokið við að skrá
niður þátttöku allra þeirra sem
rituðu nöfn sín í gestabækurnar
sem settar voru á topp 18 fjalla
í sumar. Dregið verður úr hópi
þátttakenda og hljóta 10
heppnir göngugarpar verðlaun
frá UMFÍ., 10.000 kr. vöruúttekt
í versluninni Everest.
Unglingalandsmótið
um næstu
verslunarmannahelgi
Samþykkt var á 33. sambands-
ráðsfundi sem haldið var að
Kirkjubæjarklaustri að halda
Unglingalandsmót um næstu
verslunarmannahelgi. Frestur
til að sækja um að halda
Unglingalandsmót að ári rann
út 1. desember nk.
Fimm héraðssambönd hafa
sótt um að halda mótið. Hér-
aðssamböndin eru: UMSE sem
sækir um að halda mótið á
Dalvík, HSV sem sækir um að
halda mótið á Isafirði, Fjölnir í
Grafarvogi, UIA sem sækir um
að halda rnótið á Egilsstöðum
og HSÞ sem sækir um að halda
mótið á Húsavík.
Menntamálaráðherra í
heimsókn
Tómas Ingi Olrich menntamál-
aráðherra kom á haustdögum í
heimsókn í Þjónustumiðstöð
UMFI og átti fund með fram-
kvæmdastjórn UMFÍ, ásamt
varaformanni og gjaldkera. Á
fundinum var ráðherra kynnt
starfsemi UMFI og helstu verk-
efni.Málefni UMFÍ heyra undir
menntamálaráðherra og því
mikilvægt og um leið ánægju-
legt að fá tækifæri til að kynna
honum starf hreyfingarinnar.