Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.12.2002, Page 8

Skinfaxi - 01.12.2002, Page 8
Jóhann G. Jóhannsson tónlistar- og myndlistarmaður Hættum að reykja! Á dögunum var hleypt af stokkunum sérstöku hvatningarátaki gegn reykingum. Átakið er samstarfsverkefni Jóhanns G. Jóhannssonar tónlistar- og myndlistarmanns og UMFÍ. En á sama tíma og kannanir sýna að foreldrar hafi ekki efni á að senda börnin sín til tannlæknis og almenningur kvartar yfir lágum launum, þá kaupum við sígarettur í miklu magni og árið 2001 voru seldar sígarettur fyrir 5,5 milljarða króna. Skinfaxi heyrði hljóðið í Jóhanni og spurði hann út í verkefnið. Það lá beinast við að spyrja Jóhann hvert markmiðið væri með átakinu? Texti: Valdimai Tryggvi Kristófersson Myndir: Sigurjón Ragnar ,,Að stuðla að því að ungt fólk byrji ekki að reykja og hvetja þá sem reykja til að hætta því og gera eitthvað skynsamlegra við þá fjármuni sem þannig sparast. Að vera fólki hvatning til reglubundins sparnaðar með því að leggja fyrir mánaðarlega þá upphæð í banka sem sparast við að reykja ekki. Vinna að ákveðnu sameiginlegu markmiði fjölskyldunnar, t.d. að fara í gott sumarfrí o.s.frv. Átakið er jafnframt hugsað sem forvarnarstarf gegn neyslu eiturlyfja en sannað þykir að að ungu fólki sem byrjar að reykja sé margfalt hættara við að verða eiturlyfjum að bráð síðar en ef það léti tóbakið vera." Beinist átakið aðallega að yngra eða eldra fólkinu eða öllum þeim sem reykja og reykja ekki? „Öllum sem reykja og reykja ekki er rétta svarið. Sú hvatning sem ætlunin er að koma af stað með átakinu verður vonandi til þess að sem flestir þeirra sem reykja hugleiði að hætta því og gera þess í stað eitthvað uppbyggilegra fyrir sig og sína. Og að þeir sem ekki reykja verði enn ákveðnari í því að byrja ekki á þeirri vitleysu." Þú ert frumkvöðullinn af verkefninu. Hvernig stóð á því að þú fórst af stað með þetta? „Þetta málefni hefur verið mér lengi hugleikið. Á sínum tíma samdi ég lagið Tóm tjara sem varð mjög vinsælt með Ruth Reginalds árið 1977. Tíu árum síðar gekk ég á milli bankastofnana með hugmynd að Reyklausum reikningi þar sem sett skyldi samasem merki milli sparnaðar og reykleysis. Sigurður Hafstein hjá Sambandi islenskra sparisjóða kveikti á hugmyndinni og í framhaldi stóð til að hrinda henni í framkvæmd hjá sparijóðunum en þvi miður varð ekki af því. Aftur og aftur hefur svo þessi hugmynd sótt á mig og loks ákvað ég að láta aftur til skara skríða. Ég kynnti hugmyndina fyrir Þorgrími Þráinssyni framkvæmdastjóra Tóbaksvarnanefndar í fyrra og hann tók mér mjög vel og hefur hvatt mig til dáða síðan. Síðastliðið vor fékk ég styrk frá Tóbaksvarnanefnd, þrjúhundruðþúsund krónur, til að hefja undirbúningsvinnu vegna átaksins. Boltinn fór svo að rúlla fyrir alvöru eftir að ég ræddi málin við Árna Sigfússon, bæjarstjóra Reykjanesbæjar. Það vildi þannig til að ég varð í öðru sæti í lagasamkeppni um Ljósalagið sem haldin var í byrjun september sl. í Reykjanesbæ. í framhaldi hitti ég Árna til að taka á móti verðlaununum. Ég sagði honum frá átakinu sem ég var að undirbúa og hann var strax með á nótunum sem leiddi til þess að Reykjanesbær hefur nú í samstarfi við mig komið af stað sjálfstæðu átaki; Hvatningarátaki Reykjanesbæjar-HÆTTUM AÐ

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.