Skinfaxi - 01.12.2002, Síða 9
Jóhann G. Jóhannsson
REYKJA! En það er einmitt það sem
ég myndi helst vilja sjá gerast í sem
flestum bæjar- og sveitarfélögum."
Og þú fékkst Ungmennafélag
íslands til að taka þátt í þessu
með þér. Þeir hafa tekið þér
opnum örmum og viljað leggja
þessu góða málefni lið? , Já - svo
sannarlega. Það var reyndar nánast
tilviljun að leið mín lá til UMFÍ. í
sumar sem leið vann ég að ráð-
ningum Gis Jóhannsson & Big City í
kringum Verslunarmannahelgina og
uppgötvaði þá unglingamót UMFÍ. í
tengslum við það hitti ég nafna minn
Jóhann Hauk Björnsson sem sá um
mótið og átti ég fund með honum í
bækistöð UMFÍ í Fellsmúla og áttaði
mig þá á því að þarna er heldur
betur þróttmikil starfsemi í gangi en
66.000 félagar eru í UMFÍ. Síðar
hafði ég svo samband til að kynna
átakið og ræddi við Pál Guðmunds-
son, kynningarfulltrúa, og hann
kveikti strax á mále&iinu og upp úr
því varð átakið að samstarfsverkefhi.
Að koma af stað svona átaki er
heilmikið mál - ég hef kynnst því af
eigin raun áður því á sínum hafði ég
frumkvæði að því að koma af stað
hvatningarátakinu „YRKJUM
ÍSLAND." Vandinn er gjarnan sá við
svona átök sem hleypt er af stokkum
með miklum lúðrablæstri að þau
standa yfir í ákveðinn tíma og svo
ekki söguna meir. í þessu tilfelli
gegnir öðru; hvatningarátakið
HÆTTUM AÐ REYKJA! er komið td
að vera, það hefst en því líkur ekki.
Forsvarsmenn UMFÍ og ég erum
sammála um það. Þau tengsl sem
UMFÍ hefur við bæjar- og sveitar-
félög, iþrótta- og aðildarfélög UMFÍ
skapa möguleika á farvegi fyrir
marga góða og spennandi hluti til að
vinna að í framtíðinni í tenglsum við
þetta forvarnarstarf sem átakið er."
Þú hefur sjálfur séð það með
eigin augum að það má spara
mikla peninga með því að hætta
að reykja, sem fjölskyldan getur
notað í allt öðrum og skemmti-
legri tilgangi? „Já vissulega.
Konan mín, Halldóra Jónsdóttir, hætti
að reykja fyrir einu og hálfu ári
síðan. Við ákváðum að leggja fyrir á
mánuði fjárhæð sem næmi því að
við reyktum bæði pakka á dag.
Henni var svo frjálst að gera hvað
sem hún vildi við þessa peninga. Þar
sem hún hefur sérstakt yndi af því að
ferðast þá ákvað hún að stofna
ferðasjóð og í september sl. bauð
hún mér í frábæra ferð til Barcelona
og ég held að hún hafi ekki alveg
tæmt sjóðinn."
Þú samdir nokkur antireykinga-
lög á sínum tíma sem nutu
mikilla vinsælda t.d. Tóm tjara
og Svæla, svæla, reykjasvæla.
Þú ætlar að nýta þessi lög í
átakinu og gefa út geisladisk?
„Tónlist er besta áróðurstæki sem
hægt er að hugsa sér og í svona
átaki nánast ómissandi ef ná á til
fólks á öllum aldri. Þessi lög sem þú
nefndir sönnuðu sig öll á sínum tíma,
urðu geysi vinsæl. Tómas Tómasson
í PROMO sagði mér fyrir stuttu að
þegar þessi lög urðu vinsæl þá hafi
hann verið gutti í grunnskóla og
hann minntist þess að margir bekkir
í skólanum hans voru reyklausir í
lengri tíma á eftir. Við upphaf átaks-
ins kemur semsagt út geislaplata
með þessum lögum; Tóm tjara,
Furðuverk og Svæla, svæla, reykjar-
svæla. Pétur Hjaltested sér alfarið
um vinnslu tónlistarinnar og hefur
fengið frábæra tónlistarmenn í lið
með sér. í laginu Tóm tjara eru
flytjendur Birgitta Haukdal í írafári,
Jón (Jóndi) í Svörtum fötum, Hreimur
í Landi og sonum og hin frábæra
unga söngkona, Jóhanna Guðrún.
Síðan á að vera rappkafli í laginu en
það liggur ekki fyrir hver annast
þann flutning. Á geislaplötunni verða
lögin líka „instrumental" og án
söngs þannig að hægt er að nota
undirspilið og syngja með eins og í
karioke."
Eins og þú nefndir áðan þá hefur
þú verið að vinna að fá bæjarfé-
lög og bankastofnanir í lið með
þér þannig að þau taki þátt í
þessu átaki. Hvernig hefur það
gengið og hvað kostar það við-
komandi stofnanir? „Upphaflega
ætlaði ég að reyna að fá bankastofn-
anirnar og sparisjóði til að vera í
framvarðarsveitinni þar sem mér
fannst að það hlyti að vera eftir tals-
verðu að slægjast fyrir viðkomandi
þvi við íslendingar eyddum á síðasta
ári 5,5 milljörðum í sígarettur. En svo
'í tengslum við það hitti ég nafna
minn Jóhann Hauk Björnsson sem
sá um mótið og átti ég fund með
honum í bækistöð UMFÍ í Fellsmúla
og áttaði mig þá á þvi að þarna er
heldur betur þróttmikil starfsemi í
gangi en 66.000 félagar eru í UMFÍ'
- Jóhann