Skinfaxi - 01.12.2002, Síða 13
/
Kristín Agústsdóttir
í urohverfisstefnunni sem var samþykkt 1999 segir m.a.:
UMFÍ skal leitast við að fræða fólk um leiðir til sjálfbærar
þróunar. Hvað er átt við með því? „Hugtakið sjálfbær þróun
hefur tröllriðið vestrænum samfélögum undanfarin ár,“ sagði
Kristín og hélt áfram. „Hugmyndafræðin á bak við sjálfbær þróun
er í sjálfu sér sáraeinföld: við eigum ekki að éta útsæðið okkar. Þ.e.
við eigum að gangan vel um auðlindir, bæði þær sem eru
nýtanlegar í dag, og þær sem hafa hugsanlega notagildi á morgun,
og hafa það að leiðarljósi að skerða ekki möguleika komandi
kynslóða vegna ofnýtingu auðlinda. Samkvæmt umhverfisstefnu
UMFÍ eigum við semsagt að fræða fólk um mikilvægi þess að
ganga vel um umhverfi sitt," sagði Kristín.
Umhverfisnefnd UMFÍ er afskaplega afkastamikil nefnd
með Ásdísi Helgu Bjarnadóttur frá Hvanneyri sem for-
mann. Ásamt Ásdísi Helgu og Krístínu er Jóna Þorvarð-
ardóttir einnig í nefndinni. Fyrsta verkefni nefndarinnar
var að koma verkefninu Fjölskyldan á fjallið á kopp. „í
tengslum við ár íjallsins og átaksverkefnið Fjölskyldan ofar öllu hjá
UMFÍ var ákveðið að hvetja fjölskyldur til að fara á fjöll. Það
verkefni gekk bara nokkuð vel og útlit er fyrir að við höldum áfram
með það verkefni næsta sumar," sagði Kristín þegar hún var spurð
að því hvað hafi verið gert hjá nefndinni.
,,Þá hefur nefndin unnið umhverfisreglur fyrir þjónustustöðvar
UMFÍ þar sem tekið er á ákveðnum umhverfisþáttum, s.s.
umhverfisvænni innkaupum, endurnýtingu, orkusparnaði, kynningu
umhverfisverkefna UMFÍ o.fl. Gert er ráð fyrir að þær reglur verði
sífellt í endurskoðun í takt við reynslu sem skapast," sagði Kiistín
og hélt áfram, enda mikið búið að gerast hjá nefndinni.
„Einnig hefur nefndin verið að skoða möguleika á að safna saman
upplýsingum um menningarminjar sem á einn eða annan hátt eru
tengdar starfssemi UMFÍ, s.s. skógarreitum og öðrum mannvistar-
leifum sem eru sýnilegar í umhverfinu. Það verkefni er ennþá á
hugmyndastigi. Ýmislegt annað er í farvatninu, t.d. ætlum við að
reyna að gera eitthvað skemmtilegt á degi umhverfisins sem er í
apríl," sagði hún.
Finnst þér almenningur meðvitaður um að ganga vel um
landið sitt? „Það er mjög misjafnt og því miður finnst mér skyndi-
bita- og umbúðakynslóðin ekki standa sig neitt sérstaklega vel,"
sagði Kristín.
Finnst þér að mætti auka við fræðslu um umhverfismál í
landinu? „Það er ekki nokkur spurning. Öll fræðsla er af hinu
góða, ef hún er sett fram á réttan hátt," sagði hún.
Hver er framtíðarsýn UMFÍ í umhverfismálum? „Það hlýtur
að vera sjálfbært samfélag," sagði Kristín þegar hún var spurð að
því hver væri framtíðarsýn UMFÍ. „En það er nú kannski sýn inn í
næstu öld. Fram að því stígum við bara eitt og eitt skref í átt að
þessu stóra markmiði."
Nú er þemaár Smeinuðu þjóðanna á næta ári. Hefur
nefndin eitthvað athugað möguleika á umhverfisverkefni í
tengslum við þemaárið? „Það var eitthvað rætt á síðasta fundi
nefndarinnar, en engar sérstaklega góðar hugmyndir fæddust þá.
Við óskum hér með eftir öllum góðum hugmyndum hvað þetta
varðar," sagði Kristín að lokum.
'Hugmyndafræðin á bak við sjálfbæra
þróun er í sjálfu sér sáraeinföld: við
eigum ekki að éta útsæðið okkar. Þ.e,
við eigum að gangan vel um auðlindir,
bæði þær sem eru nýtanlegar í dag, og
þær sem hafa hugsanlega notagildi á
morgun, og hafa það að leiðarljósi að
skerða ekki möguleika komandi kyn-
slóða vegna ofnýtingu auðlinda' - Kristín.