Skinfaxi - 01.12.2002, Side 16
Ungmennafélagi genr það gott í Noregi
/
Arni Gautur Arason knattspyrnumaöur og lögfræöinemi
Það er náttúrulega líf eftir boltann
Það hefur verið í nógu að snúast hjá Árna Gauti Arasyni, markverði Rosenborg og íslenska landsliðsins í knattspyrnu
undanfarin ár. Árni hefur staðið í ströngu á milli stanganna auk þess sem hann hefur verið í fullu námi með boltanum.
Hann hefur leikið undanfarin 5 ár með Rosenborg, eða allt frá þvi að hann yfirgaf UMF Stjörnuna 1997 og verið
aðalmarkvörður liðsins síðustu þrjú árin. Öll fimm árin hefur hann hampað Noregsmeistaratitli og að auki hefur hann
leikið yfir 20 leiki í Meistaradeild Evrópu á móti þeim bestu í heimi. Árna er reyndar margt til lista lagt annað en að
leika fótbolta en í janúar á næsta ári mun hann útskrifast sem lögfræðingur frá Háskóla íslands. Valdimar Kristófersson
ræddi við Árna um boltann og námið.
Texti: Valdimar Tryggvi Iiristófersson Myndir: Sigurjón Ragnar
Rosenborg var að vinna sinn 11 meistaratitil á jafn mörg-
um árum. Er enginn sem getur ógnað ykkur? „Þetta er búin
að vera ótrúleg sigurganga en það verður alltaf erfiðara og
erfiðara að vinna með hverju árinu sem líður. Ég reikna með að
lið eins og Molde, Viking og Stabæk eigi eftir að ógnað okkur
verulega á næsta ári.“
Verður þetta ekkert leiðinlegt til lengdar og er þetta ekki
slæmt fyrir norska lcnattspyrnu að þið skulið einoka
deildina? „Maður verður aldrei leiður á að vinna titla í knatt-
spyrnu. Eflaust leiðinlegt fyrir hina í Noregi en það er ekki okkar
vandamál. Það er mjög gott fyrir norska knattspyrnu að hafa eitt
lið sem er í fararbroddi og sem nær góðum árangri gegn
stórliðunum í Evrópu."
Þið hafið verið með í Meistaradeildinni undanfarin 8 ár og
spilað á móti sterkustu liðum heims t.a.m. Juventus og
Inter Milan. Er ekki mikil upplifun og reynsla að fá að
spila á móti slíkum liðum? „Það er náttúrulega meiriháttar
upplifun að spila þessa leiki og að sjálfsögðu mjög góð reynsla
fyrir mann að fá að spila gegn bestu leikmönnum heims. Þessir
leikir eiga eftir að lifa í minningunni langt fram í elli."
Ykkur hefur gengið þokkalega í Meistaradeildinni undan-
farin ár. Eru ekki miklir peningar í spilinu fyrir félagið að
komast alltaf upp úr forkeppninni? „Það eru mjög miklir
peningar fyrir að komast í Meistaradeildina og mjög mikilvægt
fyrir fjárhagslegan grundvöll félagsins að vera með þar. Ég er
ekki með nákvæmar tölur en mig minnir að það sé verið að tala
um hátt í milljarð."
Það er mikil keyrsla á þér í boltanum en þú stundar einnig
lögfræðinámi utanskóla við Háskóla íslands - hvernig
hefur gengið að blanda þessu saman? , ,Þetta hefur gengið
bærilega og nú er loksins farið að sjá fyrir endann á þessu. Ég
reikna með að útskrifast í janúar. Þetta hefur verið frekar erfitt að
samræma námið og boltann á köflum en ég er mjög ánægður
með að hafa haldið áfram námi því það er náttúrulega líf eftir
boltann líka.“
Þú ert um þessar mundir að skrifa ritgerðina sem þú átt að
skila í janúar - snýst hún að einhverju leyti að knattspyrn-
unni? „Nei, ritgerðin er á sviði höfundaréttar. Það er nóg um að
vera í fótboltanum án þess að ég sé einnig að blanda honum við
námið."
Þannig að þú setur stefnuna á lögfræði þegar knattspyrnu-
iðkun lýkur? „Ég reikna með því en maður veit svo sem aldrei
hvað framtíðin ber í skauti sér. Ég vona að ég geti haldið áfram
sem lengst í fótboltanum
Þú kannt væntanlega vel við þig í Þrándheimi - Þetta er 5
árið þitt með liðinu? „Já, ég kann mjög vel við mig í Þránd-
heimi, búinn að koma mér vel fyrir og svo er andrúmslofdð í
kringum liðið frábært."