Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.12.2002, Page 18

Skinfaxi - 01.12.2002, Page 18
Afmælisbörnm UMSB og UMSK / Asdís Helga Bjarnadóttir formaður UMSB Engan bilbug að fínna á . sambandinu eftir 90 ár Ungmennasamband Borgarfjarðar (UMSB) varð 90 ára á árinu. Sambandið var stofnað 26. apríl 1912 og hefur félagasmönnum fjölgað jafnt og þétt með árunum. Félagsmenn eru tæplega 2300 í dag í 16 félögum innan sambandsins en 11 þeirra eru virk um þessar mundir. Skinfaxi sló á þráðinn til Ásdísar Helgu Bjarnadóttur formanns UMSB og komst að því hvernig afmælisárið hafi verið og hvernig starfið gangi. Texti: Valdimar Tryggvi Kristófersson Myndir: Sigurjón Ragnar „UMSB hélt formlega upp á 90 ára afmælið með hátíðardagskrá í Logalandi í Reykholtsdal í tengslum við afmælisdaginn 26. apríl. Þarna var um að ræða kaffisamsæti með menningarlegu ívafi, frá m.a. þjóðdansahópnum Sporinu, leikdeildum skóla og aðildafélaga, tónlistaratriði frá ungmennafélögum, ásamt ræðum og heiðursviðurkenningum. Fjölmargir mættu og gaman var að sjá hversu margir eldri félagar og formenn létu sjá sig. Teknar voru saman upplýsingar um starfsemi sambandsins síðustu 10 árin og gefið út í affnælisriti UMSB. Skipuð var einnig ungliðanefnd til undirbúnings hátíðar fyrir yngri kynslóðina í tengslum við afmælið. Sú hátíð fór fram 23. nóvember í íþróttamiðstöðinni í Borgarnesi. Nefndin lagði til að halda kynningu á hinum ýmsu greinum og félagasamtökum. íþróttadeildir sambandsins og Umf. Skallagríms sáu um kynningu á einstökum greinum eins og t.d, frjálsum íþróttum, sundi, körfubolta, fótbolta, golfi, badmintoni o.fl. samhliða því að fá kynningu á starfsemi skátana og Rauða krossins. Auk þess var Handknattleikssambandi íslands sérstaklega boðið til leiks, Hátíðin var afar vel heppnuð og gaman að sjá hversu áhugasamir krakkarnir voru bæði í undirbúningi og þátttöku þeirra í deginum," segir Ásdís.

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.