Skinfaxi - 01.12.2002, Page 25
Tryggvi Þorsteinsson ATV
Traust þjónusta og gæði fara saman
UMFÍ gerir með sér samstarfssamning við fico Tæknival
Á haustdögum gerðu AcoTæknival og Ungmennafélag íslands með sér samning sem gerir hinum
fjölmörgu aðiladarfélögum UMFÍ lcleyft að kaupa tölvur og tölvubúnað á afar hagstæðum
lcjörum. Skinfaxi forvitnaðist um málið og ræddi við Tryggva Þorsteinsson, sölustjóra
fyrirtækjasviðs hjá Aco Tæknivali, um þetta góða samstarf.
Texti: Skapti Örn Jónsson Mynd: Sigurjón Ragnar
Ef þú segir mér svona til að byrja
með í hverju samningur ATV og
UMFÍ felst? „UMFÍ kom að máli við
okkur með þá hugmynd að bæta og
auðvelda starf hreyfingarinnar með því
að tölvuvæða aðildarfélögin, eða öllu
heldur að aðstoða þau við það. Við
lögðumst í sameiningu undir feld og
reyndum að gera okkur grein fyrir
þörfum hinna ýmsu félaga. Niðurstaðan
varð þessi, samningur með góðum
vörum á hagstæðu verði og með afborg-
unarkjör sem henta flestum, hvort sem er
litlum eða stórum félögum. Eins og fram
kemur í samningi okkar þá bjóðum við
upp á vaxtalaust lán auk þess sem við
sendum búnaðinn frítt hvert á land sem
er. Við val á búnaði var sérstaklega haft í
huga nútíma samskipti þar sem
ferðatölvan vegur þungt ásamt því að
stafrænar myndavélar koma sér vel
þegar mynda þarf unga keppendur og
birta t.d. á vef."
Af hverju samningur við ungmenna-
hreyfinguna? „Fyrir okkur er þetta
auðvitað viðskipti eins og venjulega
nema hvað þarna hangir aðeins meira á
spýtunni, þ.e. unga kynslóðin. Það að
gera heilbrigð og góð viðskipti þar sem
allir hagnast er líklega í anda hreyfingar-
innar. Reyndar er það nú svo að við erum
að veðja svolítið því tilboðið miðast við
að margir munu nýta sér það. Auðvitað er
það okkar metnaður að sinna ykkur vel,
bæði hvað varðar verð, gæði búnaðar og
ekki síst þjónustu."
Er AcoTæknival með einhverskonar
stefnu í gangi hvað varðar stuðning
við æskulýðsstarfsemi í landinu?
,,Það er engin sérstök stefna önnur en sú
að taka á hverju máli fýrir sig."
Nú eruð þið að styrkja ungmenna-
hreyfinguna í landinu til tölvulcaupa,
er ekki heilbrigðara fyrir börn og
unglinga að taka þátt í hverskonar
æskulýðs- og íþróttastarfi í stað þess
að hanga fyrir framan tölvuna? „Þetta
er á vissan hátt rétt, þ.e, að það er mikið
heilbrigði fólgið í starfi UMFÍ. Ég á ekki
von á að þessi búnaður verði til afhota
fyrir börnin, en hann verður vonandi til
þess að reksturinn verði betri og nútíma-
legri. Þannig vonum við að hægt verði að
auka og bæta starf hreyfingarinnar. “
Tókst þú þátt í starfi ungmenna-
hreyfingarinnar eða öðru æskulýðs-
starfi á árum áður? „Já - en ekki til
mikillar frægðar. Þegar ég var í sveit þá
keppti ég í frjálsum fyrir USAH. Síðan
spilaði ég með Breiðablik körfubolta til
tæplega þrítugs. Núna er ég félagi í
golfklúbbnum Kyli í Mosfellsbæ og ekki
má gleyma því að dóttir mín spilar
fótbolta með UMFA."
Ef þú segir mér aðeins frá Aco-
Tæknivali, er þetta öflugt fyrirtæki á
sviði tölvumála í landinu? „ATV er
fyrirtæki sem kemur út úr samnma Aco
og Tæknivals. Um borð hjá okkur er mjög
kröftugt fólk sem leggur metnað sinn í að
gera hlutina vel. Auðvitað skiptast á skyn
og skúrir í viðskiptalífinu eins og gengur
en okkur hefur alltaf tekist að koma niður
á fæturna enn sterkari en áður. Við erum
eitt stærsta og elsta fyritækið í
tölvubransanum í dag."
Er mikilvægt að ungmennahreyf-
ingin í landinu nýti sér upplýsinga-
tæknina í sínu starfi? „Að sjálfsögðu
er það mikilvægt. Ég tel að þetta sé
eitthvað sem ekki verður umflúið. Ef við
ætlum yfir höfuð að reka slíka hreyfingu
þá verðum við að taka tæknina í okkar
hendur. Þetta er kannski frekar spurning
um hvernig við nýtum tæknina."
Heldur þú að tölvur eigi eftir að
koma í stað íþrótta og æskulýðs-
starfs í framtíðinni? „Nei - það ætla ég
að vona ekki, það er auðvitað alveg
fáránleg tilhugsun. En ég er viss um að
tölvur muni auðvelda okkur að reka
félögin og rekstur þeirra."