Skinfaxi - 01.12.2002, Blaðsíða 27
Siggi Hall meistarakokkur
Hreindýr í stað rjúpu á aðfangadagskvöld
Jólin nálgast óðfluga og jólaundirbúningur er að ná hámarki um þessar mundir. Það eru margir sem eiga sér
ákveðnar hefðir yfir jólahátíðina t.d. matinn sem borinn er á borð á aðfangadag. Hamborgarhryggurinn, kalkúnn og
rjúpan er í uppáhaldi hjá mörgum og líklega á það eftir að hryggja marga að fá ekki rjúpuna sína þessi jólin en
mikill skortur er á rjúpu a.m.lc. þeirri „íslensku“. Skinfaxi leitaði því til eðalkokksins og ungmennafélagans Sigga
Hall og athugaði hvort það væri eitthvað sem kæmi í staðinn fyrr rjúpuna. Auk þess notaði Skinfaxi tækifærði til að
forvitnast nánar um þennan viðkunnanlega og skemmtileg karalcter sem notar mikið af frítíma sínum í að fylgjast
með og starfa fyrir Ungmennafélagið Fjölni í Garfarvogi. Við mæltum okkur mót á veitinghúsinu hans Óðinsvé þar
sem Siggi bauð upp á kaffi áður en viðtalið hófst.
Texti: Valdimar Tryggvi Kristófersson Mynd: Sigurjón Ragnar
Siggi Hall er löngum orðinn landsfrægur
maður. Hann hefur sjálfsagt matreitt
ljúffengan rétti ofan í flesta landsmenn í
gegnum árin enda starfað við þessa iðn í
fjölda ára. Þá hefur hann verið tíður gestur í
sjónvarpi landsmanna og hefur gert yfir 300
ferða- og matreiðsluþætti. En Hvenær
byrjaði Siggi Hall að elda? ,,Það eru svo mörg
ár síðan að ég er búinn að gleyma því," segir
glottandi og virðist ekki vilja gefa það upp. „Ætli
það sé ekki komin 30 ár,“ lætur hann þó að
lokum út úr sér. En auk þess að vera búinn að
elda ofan landsmenn í á fjórða áratug þá hefur
hann verið tíður gestur á sjónvarpsskjánum. Hann
hefur unnið og framleitt matreiðslu- og ferðaþætti
undanfarin 10 ár og eru þættirnir orðnir í
kringum 300 sem telst vera íslandsmet að hans
sögn. Siggi er um þessar mundir að ljúka
frágangi á nýrri þáttaröð sem kalla má ferðaþætti
með áherslu á matargerð? „Þetta eru ferðaþættir
þar sem matur og matargerð er kynnt í hinum
ólíku löndum. Þar opna ég bakdyr veitingastaða
og fæ að líta inn í eldhúsið og ofan í pottana. Ég
ræði við fjölda kokka og fólk sem kemur við
matargerð. Við komum m.a. við á Ítalíu, Frakk-
landi, Ameríku, Rínarlöndum, Þýskalandi,
Hollandi, Svíþjóð og víðar,"segir hann en
þættirnir hefja göngu sína í febrúar eða mars.
Þetta hlýtur að vera skemmtileg vinna að fá
tækifæri til að ferðast um heiminn og brag-
ða á ólíkum tegundum matar? , .Jú, þetta er
mjög skemmtilegt en þetta er líka mikil vinna og
manni veitir ekkert af næringunni sem maður
fær," segir hann hlæjandi og strýkur um magann.
Þú kemur nálægt Ungmennafélaginu Fjölni
vegna barna þinna? , Já, dóttir mín Krista var í
Fjölni þegar hún var í yngri flokkunum og sonur
minn, Óli Hall er í fótboltanum og er í 6. flokki. Ég
vinn þannig vinnutíma að ég get tekið þó nokkurn
þátt í starfinu. Ég hef fylgst mikið með æfingum
hjá stráknum og hef mjög gaman af. Það er
gaman að fylgjast með pollum í fótboltaleik á
þessum aldri."
Varstu sjálfur ungmennafélagi á þínum
yngri árum? „Nei, það er nú víst ekki hægt að
kalla KR ungmennafélag en ég stundaði t.d.
knattspyrnu á mínum yngri árum. Ég hef líka alltaf
haft mikinn áhuga á skíðum."
Varstu mikill knattsyrnumaður? „Nei, ekki
get ég sagt það og raun hætti ég mjög snemma
að æfa knattspyrnu. Ég var samt mikil íþróttafrík,
var alltaf hlaupandi, hjólandi, synti mikið og ég
renndi mér mikið á skíðum þótt það sjáist ekki á
mér í dag að ég hafi veirð mikið í íþróttum," segir
hann hlæjandi og strýkur sér um vömb sem hefur
eitthvað blásið út með árunum. „Ég hef sparað
mig mikið í þessum efnum undanfarin ár og lítið
hreyft mig. Ég fer þó á skíði reglulega og hef
mjög gaman af því."