Skinfaxi - 01.12.2002, Qupperneq 33
Björn B. Jónsson
Þar var lagt til að haldið verði áfram viðræðum við ÍSÍ um aukið
samstarf og samvinnu á sem flestum sviðum. Að leiðarljósi skal þó
haft að áfram verði til tvenn heildarsamtök, annars vegar öflug
Ungmennafélagssamtök sem vinni á breiðum grunni með
héraðssamböndum og íþróttabandalögum og hins vegar ÍSÍ.
SJdpulagsne&idin ásamt stjórn hafa haft til skoðunar aðildarumsóknir
ÍBR og ÍBH að Ungmennafélagi íslands. Niðurstaða þeirrar
umQöllunar er að laganefnd hreyfingarinnar verður falin heildar-
endurskoðun á lögum UMFÍ. Að loknum ofangreindum breytingum
mun stjórn UMFÍ mæla með við sambandsþing að umsóknir
íþróttabandalaga um inngöngu í UMFÍ verði samþykktar svo fremi
sem þær uppfylli öll skilyrði um inngöngu. Lottóskipting hefur einnig
verið til skoðunar og mun skápulagsnefndin leggja fyrir stjórn UMFÍ
nú í byrjun desember nýjar tillögur um þá skiptingu.
Mjög ánægjulegt hefur verið að fylgjast með þeirri nýbreytni
stjórnar að starfa með þrjú svið. Þau eru íþróttasvið, menningarsvið
og umhverfissvið. Nokkur reynsla er að komast á þessa nýbreytni í
okkar starfi og lofar hún góðu. Mikið af nýjum hugmyndum hafa
komið fram sem spennandi verður að fylgjast með í náinni framtíð.
í sumar var Páll Guðmundsson ráðinn kynningarfúlltrúi hjá
samtökunum.
í vor var valin staðsetning fýrir 24. Landsmóts UMFÍ sem verður
haldið 2004. Mikill áhugi héraðssambanda var á að fá þetta
Landsmót til sín en Skagfirðingar munu halda næsta Landsmót. í
haust var ákveðið að auglýsa eftir mótshöldurum fyrir Landsmótin
2007 og 2009.
Erlend samskipti hafa aukist síðustu misseri innan UMFÍ. Margir
ungmennafélagar hafa teldð þátt í ýmsum uppákomum sem tengjast
þessu starfi bæði hér á landi sem erlendis. Anna R. Möller var kjörin
formaður NSU á síðasta þingi þess. Það er oJdmr mikill akkur að hafa
formann þessara öflugu norrænu samtaka frá Islandi, sérstaklega á
meðan þau ganga í gegnum miklar stjórnbreytingar sem eiga sér
stað um þessar mundir. Eftir milda stækkun samtakanna hefur farið
fram endurskoðun laga NSU sem m.a. gerir ráð fyrir að öllum
aðildarsamtökunum er frjálst að tilnefna einn mann í stjórn. Nýr
formaður hefur boðað að ungt fólk eigi að taka meiri þátt í innra
starfi samtakanna í framtíðinni. Því ber að fagna og verður spennandi
að sjá hvernig til tekst.
NoJdcur vinna hefur verið í gangi til að koma á auknu samstarfi á
milli ungmennafélaga í Færeyjum, Grænlandi og íslandi. Sú vinna
hefur sldlað nokkru og hafa ungmenni hist einu sinni til að bera
saman bækur sínar. Ekki er ljóst á þessari stundu hvort þetta
samstarf verði að veruleika i framtíðinni m.a. vegna mikils kostnaðar.
Samstarf við ISCA hefúr einnig aukist til muna sem sást best á
Unglingalandsmótinu í sumar þar sem listamenn frá TékJdandi sýndu
listir sýnar. Heimurinn er að opnast og það er skylda okkar sem
stýrum landssamtökum eins og Ungmennafélagi íslands að fylgjast
vel með og taka þátt eins og við teljum að við ráðum við á hverjum
tíma.
Til að koma til móts við óskir Ungmennafélaga á landsbyggðinni um
aukna þjónustu var tekin sú ákvörðun að styrkja nokkrar skrifstofur
Héraðssambanda og koma á laggirnar þjónustumiðstöðvum UMFÍ.
Er þessi tilraun til eins árs og verður endurskoðuð að þeim tíma
liðnum. Ekki er víst að eins verði staðið að þessum málum á næsta
ári, en mikill vilji er innan stjórnar að þessi nýbreytni megi takast
sem best. Það skiptir mildu máli að við höldum óbreyttum
framlögum úr ríJdssjóði til að takast megi að tryggja framlag til
þeirra Héraðssambanda sem standa straum af þessum
þjónustumiðstöðvum og skapa þeim með því relcstargrundvöll.
íslandi allt,
Björn B. Jónsson formaður
'Þessi samblanda af útihátíð og íþrótta-
móti tókst með ágætum. Enn einu sinni
sannar ungmennafélagshreyfingin að
það er hægt að gera nær það ómögu-
lega. Að segja sukki og svínaríi þess-
arar alræmdu helgar stríð á hendur
virðist ekki á færi hvers sem er' - Björn