Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.11.2005, Page 10

Skinfaxi - 01.11.2005, Page 10
Halldóra Guðjónsdóttir og Unnur Jónsdóttir á ungmennaviku í Noregi: Við lögðum af stað þann 3.júní síðastliðinn. Ferðinni var heitið í nágrenni Bergen í Noregi til að taka þátt í ungmennaviku NSU með fleiri ungmennum frá Norðurlöndunum. Við komum á áfangastaðinn það sama kvöld.Aðsetur okkar, á meðan á dvöl okkar stóð, var eins konar félagsheimili 4 H rétt hjá Bergen. Um kvöldið fengum við upplýsinga- möppu með dagskrá vikunnar og einnig kom þar fram í hvaða herbergi okkur hafði verið plantað, með hverjum, og hvaða verkefni íbúar hvers herbergis þurftu að Ijúka við á hverjum degi, t.d. að þrífa, matreiða o.fl. Fyrsta dag vikunnar var mannskapnum skipt í tvo hópa. Annar hópurinn lærði þjóðdansa en hinn eldaði þjóð- legan hádegisverð. Eftir hádegi skiptu hóparnir um viðfangs- efni. Það var fróðlegt að kynnast matnum sem var öðruvísi en við eigum að venjast hér á landi, einnig var gaman að læra þjóðdansana og maður kynntist krökkunum vel í gegn- um dansinn. Þó hefði verið betra ef við hefðum skilið fyrir- mælin en við klóruðum okkur í gegnum dansinn og teljum að við höfum ekki verið neinir eftirbátar hinna við þessa iðju. Um kvöldið var svokallað þemakvöld sem gekk aðallega út á það að kynnast viðhorfum hverrar þjóðar til hinna þjóðanna. Annan daginn smurðum við okkur nestispakka og héldum af stað út á hið stóra haf þar sem við stunduðum sjóstangaveiði fram eftir degi. Þar þurftum við nú ekki að fá sérstaka kennslu og Islendingarnir veiddu samtals flesta fisk- ana þótt við værum mun færri en þátttakendurnir frá hinum þjóðunum. Þó verður að minnast á að Dönum virðist ekki vera ætlað að stunda sjóinn því að þeir urðu allir sjóveikir áður þeim tókst að byrja veiðarnar. Einnig er vert að minn- ast á það að við vorum einu þáttakendurnir sem treystu sér til að verka aflann. Þegar á land var komið fórum við f lítinn kofa þar sem kveikt var í kolunum og afli dagsins grillaður; bæði í heilu lagi og settur í súpu, og í lokin grilluðum við brauð á priki. Smakkaðist það allvel. Eftir þetta héldu allir heimleiðis saddir og sælir og um kvöldið skelltum við okkur á kanó. A þriðja degi vikunnar fengum við leiðsögn um Bergen sem nýttist okkur heldur lítið þar sem hún fór fram á hraðri norsku. Eftir leiðsögn þessa fengum við frjálsan tíma í Bergen, sem við nýttum aðallega til að kynna okkur norska verslunarhætti. Þá um kvöldið var annað þemakvöld vikunn- ar haldið og gekk það út á að láta okkur kynnast betur með hinum og þessum leikjum, t.d. fengum við gums í poka og áttum að gera listaverk með sögu úr því (humm... það var fróðlegt). A fjórða degi fengum við að leika lausum hala og meðal annars fórum við í blak, rerum á kanó og reyndum að fiska. Reyndartókum við þátt ítveimur stuttum nám- skeiðum og var annað um skyndihjálp, þar sem við fengum m.a. að blása í Önnu (dúkkuna). Seinna námskeiðið var til að fræða okkur um hvað ráðlegt væri að setja í bakpokann sinn áður en lagt er í fjallgöngu. Um kvöldið var svo heljarinnar grillveisla þar sem okkur bauðst margt hnossgætið.Vert að vekja athygli á því að svo virðist sem Norðmenn séu nýbúnir að uppgötva kartöflusalatið. SKINFAXI - timarit Ungmennafélags íslands

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.