Skinfaxi - 01.11.2005, Side 11
k
*
Á fimmta degi vikunnar var lagt af stað snemma með
rútu til Voss. Það ferðalag tekur um einn og hálfan tíma og á
leiðinni eru 36 veggöng! I Voss skoðuðum við magnþrungið
gljúfur þar sem kraftur vatnsins sést vel. Svo héldum við af
stað í heilmikla fjallgöngu upp á eitt af hærri fjöllum í Noregi
sem heitir Lonahorgi og er 1411 m hátt.Við
fengum að ráða hvort við færum einungis
smáspöl upp eftir fjallinu eða alla leið á
tindinn.Við völdum að sjálfsögðu að fara alla
leið.
Leiðin upp var einstaklega erfið því að
hitinn var gífurlegur og við fundum hvernig
hörundið brann í sólarljósinu. Því miður þurft-
um við að vera komnar á tindinn fyrir ákveð-
inn tíma þannig að við urðum að drífa okkur
til að komast alla leið. Þegar við nálguðumst
tindinn lá leið okkar yfir stórar snjóbreiður sem var bæði
vont og gott því að erfitt var að ganga yfir þær en gott að
geta kælt sig niður Útsýnið bæði á leiðinni og af tindinum
var magnað og þegar upp var komið sáum við niður í dali
og þorp og ótal marga fjallatinda allt í kringum okkur Þó að
við værum þreyttar eftir þetta ferðalag vorum við sælar og
glaðar með árangurinn. Þessi fjallganga mun seint líða okkur
úr minni. Þegar niður kom fengum við að fara í sturtu og
eftir það var okkur boðið í þjóðlega kjötkássu. Svo var
haldið heim á nýjan leik.
Á lokadegi hinnar skipulögðu dagskrár var unnið í
hópum í þemaverkefni um Norðurlöndin.Verkefnið fólst í
því að ákveða hvernig við myndum skapa nýtt þjóðriki úr
öllum Norðurlöndunum, t.d. finna tungumál, fána, höfuðborg
o.fl. Um kvöldið var okkur boðið til brúðkaupsveislu þar sem
hver fékk úthlutað sínu hlutverki, t.d. að vera frænka brúðar-
innar eða móðir brúðgumans, og einnig áttum við að búa
okkur sjálf til veisluklæðnað, stúlkurnar úr litlum efnisstranga
og drengirnir úr ruslapokum og dagblöðum. Útkoman úr
þessu fór langt fram úr væntingum. Svo fengum við dýrlegar
veitingar og allir skemmtu sér konunglega fram eftir nóttu.
Hinum allra síðasta degi eyddum við íað pakka,
skoða sædýrasafn og bíða á flugvöllum.
Vikan var öll mjög spennandi og
skemmtileg upplifun, þar sem við lærðum
margt nýtt og kynntumst mörgum fjörugum
krökkum. Einnig áttuðum við okkur betur á
því hversu mikilvægt það er að kunna að
minnsta kosti eitt annað norrænt tungumál.
Við vonumst til að við höfum vakið áhuga
krakkanna frá hinum þjóðunum á Islandi og
íslenskri menningu. Þó virtust þau ekki ýkja
hrifin af harðfiskinum sem við buðum þeim
upp á og leggjum við til að á næsta ári verði þeim boðið í
veglegt þorrablót með hákarli og öllu tilheyrandi.
Við þökkum innilega fyrir okkur og vonum að fleiri
Islendingar taki þátt á næsta ári.
®Almenna 1
wZOv verkfræðistofan www.almenna.is
ySODB
/mAWÁi\ w 9.UNGLINGA LANDSMÓT
UMFÍ
SKINFAXI - gefið út samfleytt síðan 1909