Skinfaxi - 01.11.2005, Síða 21
mönnum að bæta samskiptin og heimasíðu samtakanna.
Samtökin halda tvo stjórnarfundi á ári og allir aðilar eiga rétt
á stjórnarsetu þannig að stjórnin er mjög stór. Samheldnin
einstaklega góð og vinna gengur mjög vel íyrir sig. NSU
stendur ennfremur fyrir ýmsum viðburðum, ungmennavikum
leiðtogaskólanum, 4 H-leikum annað hvert ár sem eru öllum
opnir en þó aðallega þátttakendum frá þessum samtökum.
Þess má geta að ungmennavika verður haldin hér á landi
næsta suman" segir Anna.
Anna segir að ein meginástæða þess að flytja
skrifstofuna til Kaupmannahafnar hafi verið að fá
starfsmann í hálft starf og komast nær hugsanlegum
tekjumiðlum. Sótt var um stóran styrk til Evrópu-
sambandsins sem fékkst og mun breyta mörgurí
starfseminni.
NSU var stofnað 1946 og fagna samtökin
60 ára afmæli sínu á næsta ári. Þess má
fróðleiks að UMFI gekk í samtökin árið I
Lögð er áhersla á að í stjórn NSU
stjórnarmenn frá aðildarsamtökunum
ákvarðanatökur séu auðveldar Anna R.
kom að þessum samtökum 1998 en þ;
Björn B. Jónsson við formennsku. Arið
var haldin hér á landi stór ungmennavika,
& ungdom, með 2000 þátttakendum,
Anna í undirbúningsnefnd þeirrar hátíðar
var Anna kosin formaður NSU. Hún segir
spennandi að vinna fyrir þessi samtök sem eru
að eflast til muna eins og raun ber vitni.
Það mætti draga þá ályktun af þessu að þú sért mikil
félagsvera?
„Já, við getum alveg sagt það, mér finnst óhemju gaman
að vinna með fólki, fyrir fólk, og vera með fólki.”
- Hvaða framtíð sérðu í samtökum á borð við NSU?
„Við munum beita okkur sem samtök sem gefa ungu
fólki tækifæri til að umgangast jafnaldra sína á Norðurlönd-
um.Við munum efla leiðtogamenntunina en við höfum nú
þegar orðið vör við góðan árangur í því starfi. Það unga fólk
er að skila sér inn í stjórnina sem er afar jákvætt vegna þess
að aldurinn í stjórn þessara ungmennasamtaka var framan af
frekar hár Það kom mér á óvart, þegar ég tók til starfa
þarna, hvað lítið var þar af ungu fólki. Þetta er mikið að
breytast og nú er orðin mjög skemmtileg blanda af ungu og
eldra fólki. Það þarf alltaf að fara hinn gullna meðalveg í
þessum efnum sem öðrum. Ég sé þessi samtök eflast sem
byggja á leiðtogaþjálfun og síðan er meiningin að fara út í
stjórnendafræðslu þannig að þetta verði meira samskipta-
miðill ungs fólks á marga vísu,” segir Anna.
^spron
GARÐUR
SKINFAXI - gefið út samfleytt síðan 1909 j|j