Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.11.2005, Blaðsíða 23

Skinfaxi - 01.11.2005, Blaðsíða 23
f # Nýbygging Iþrótta- og sýningarhallarinnar tekin í notkun: Nýbygging Iþrótta- og sýningarhallarinnar í Laugardal var formlega tekin í notkun á dögunum, að viðstöddum fjölda gesta. Steinunn Valdís Óskarsdóttir borgarstjóri opnaði form- lega nýja Laugardalshöll og sagði við það tækifæri að ákaf- lega vel hefði til tekist að byggja við Laugardalshöllina, mann- virki sem allir landsmenn þekktu. Bygging hússins hófst í júní 2003 og gengu framkvæmdir samkvæmt áætlun. Nokkur ávörp voru flutt við opnunina og var samdóma álit ræðu- manna að verkið hefði heppnast vel og allir gætu verið stoltir af þessu stórkostlega mannvirki. Með opnun þess má segja að möguleikarnir séu endalausir og að langþráður draumur frjálsi'þróttamanna sé loksins orðinn að veruleika. Iþrótta- og sýningarhöllin er fjölnota i'þrótta- og sýningar- hús, alls um 16.000 fermetrar Með tilkomu 9.800 fermetra nýbyggingar býður Laugardalshöll eina fullkomnustu aðstöðu á Islandi fyrir i'þróttakeppnir; sýningarhald, ráðstefnun fundi, tónleika, árshátíðir og ýmsa mannfagnaði. Með nýbyggingu Laugardalshallar sem er björt og rúm- góð, er í fyrsta sinn hægt að bjóða fullkomið fjölnota sýning- arsvæði innandyra. Nýi salurinn er um 5.000 fermetran sér- hannaður fyrir frjálsi'þróttaæfingar og keppni auk sýninga. Þar verður einnig hægt stunda körfuknattleik, blak og skólaleik- fimi. I eldri salnum verða stundaðar margvíslegar íþróttir en hann rúmar allt að 6.000 tónleikagesti. Öll aðkoma að nýja salnum er mjög þægileg en hönnun byggingarinnar gerir notendum kleift að koma stórum hlut- um fyrir innandyra. Lýsing og hljóðhönnun leyfa afar fjöl- breytta notkun en draga má fýrir glugga og myrkva salinn með einu handtaki. Nýi salurinn rúmar allt að 10 þúsund manns á tónleikum eða viðli"ka viðburðum. Góð veitingaaðstaða er fyrir stóra og smærri hópa þar sem reiða má fram morgunverð, hádegisverð og veitingar í lok funda. Ný frambygging og góð bílastæði auðvelda aðkomu gesta að Laugardalshöll. Iþrótta- og sýningahöllin hf. á og annast allan rekstur Laug- ardalshallar Að hlutafélaginu standa Reykjavikurborg og Sam- tök iðnaðarins. Framkvæmdastjóri er Jónas Kristinsson. Hönn- un nýbyggingarinnar var í höndumTark teiknistofunnar ehf. og VST verkfræðistofu hf. Iþróttabúnaður erfrá MONDO. .XI - gefi fið ut samfleytt síöan 1909 23

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.