Skinfaxi - 01.11.2005, Qupperneq 28
Ungmenna- og tómstundabúðirnar að Laugum:
Efla sjálfstraust,
samvinnu og tillitssemi
Ungmennafélag Islands fór af stað með
Ungmenna- og tómstundabúðirnar að
Laugum í Dalasýslu í byrjun þessa árs.
Þær eru ætlaðar ungmennurm á aldrin-
um 14-15 ára, í 9. bekk, sem dvelja
munu að Laugum frá mánudegi til
föstudags. Ætlunin að starfrækja
Ungmenna- og tómstundabúðirnar að
Laugum í um 30 vikur á vetri hverjum,
frá september fram í maí.
Forstöðumaður búðanna er Bjarni
Gunnarsson.
Samstarfsaðilar um Ungmenna- og tómstundabúðirnar
að Laugum eru Ungmennafélag Islands, sveitarfélagið Dala-
byggð og fleiri. Ennfremur mun faglegt samstarf verða við
tómstundabraut Kennaraháskóla Islands. Allar nánari upplýs-
ingar um búðirnar og dvöl þar eru veittar á skrifstofu UMFI.
Undirbúningur að stofnun Ungmenna- og tómstunda-
búða að Laugum stóð hátt á annað ár Ungmenna- og tóm-
stundabúðirnar eru hugsaðar sem þriggja ára tilraunaverkefni
í samstarfi við ýmsa aðila sem koma að málum barna og
unglinga á Islandi. A undirbúningstímanum var leitað til fjöl-
margra aðila sem hafa sterkan faglegan bakgrunn í i'þrótta-
og tómstundamálum ungs fólks og reynslu í að undirbúa
verkefni sem þetta. Að málum komu meðal annarra fagfólk
úr íþrótta-, æskulýðs- og tómstundamálum sveitarfélaga og
íþrótta- og æskulýðsfélaga, forsvarsmenn tómstundabrautar
KHI og fleiri.
Ungmenna- og tómstundabúðirnar að Laugum eru rekn-
ar í anda hugmyndafræði UMFI. Markmið Ungmenna- og
tómstundabúðanna að Laugum er að vera leiðandi í rekstri
ungmenna- og tómstundabúða á Islandi. Að efla sjálfstraust,
samvinnu og tillitssemi. Að hvetja til sjálfstæðra vinnubragða.
Að kynnast heimavistarlífi. Að fræðast um söguslóðir. Að
kynna landið og nánasta umhverfi. Að læra að vera þátttak-
andi í félagsstörfum í anda UMFI. Að fræðast um mikilvægi
forvarna. Að kynna ábyrg fjármál. Að vinna markvisst gegn
einelti. Að fræðast um mikilvægi hollra lifnaðarhátta og kynn-
ast jaðaríþróttum.
Ennfremur er lögð áhersla á tómstundir sem lífsstíl og
sem mikilvægan þátt í forvarnastarfi. Rannsóknir hafa sýnt
fram á að þátttaka barna og unglinga í íþrótta- og æskulýðs-
starfi hefur mikilvægt forvarnagildi.
Rík áhersla er lögð á að námið nýtist þegar heim er
komið þannig að þátttakendur geti stofnað eða starfrækt
nemendafélög og eða aðra félagstengda starfsemi.
Bryddað er upp á þeirri nýjung að kenna þátttakendum
grundvallaratriði í stjórnun einkafjármála á lifandi og
skemmtilegan hátt. A námskeiðunum verður farið í að kynna
fyrir unglingunum mikilvægi þess að fara vel með peninga,
mikilvægi þess að huga að skipulagningu fjármála og eyða
ekki um efni fram heldur reyna að leggja fyrir; þó að um
smáar upphæðir sé að ræða.
Dalasýsla er eitt helsta sögusvæði Islands. Nemendur í
Ungmenna- og tómstundabúðunum að Laugum heimsækja
bæ Eiríks rauða að Eiríksstöðum í Haukadal. Þar gefst þeim
INFAXI - tímarit Ungmennafélags íslands