Skinfaxi - 01.05.2008, Síða 5
Málþing um niðurstöður Forvarnadagsins:
Tími með fjölskyldunni og
þátttaka í íþrótta- og æsku-
lýðsstarfi vega þungt
Málþing um niðurstöður Forvarnadags-
ins 2007 fór fram í Iþróttamiðstöðinni
í Laugardal 3. apríl sl. Skipuleggjendur
voru forseti íslands, Ungmennafélag fs-
lands, Samband íslenskra sveitarfélaga,
fþrótta- og Ólympíusamband fslands,
Bandalag íslenskra skáta, Reykjavíkur-
borg og Háskólinn í Reykjavík. Sérstak-
ur stuðningsaðili verkefnisins var lyfja-
fyrirtækið Actavis.
Forvarnadagurinn var haldinn í annað
sinn miðvikudaginn 21. nóvember sl.
Kjarninn í þessum degi fólst í dagskrá
og verkefnavinnu í öllum 9. bekkjum
grunnskólanna. Spurningar, er varða
samverustundir fjölskyldna og þátttöku
barna og unglinga í íþrótta- og æsku-
lýðsstarfi, auk spurninga er tengdust
áfengis- og fíknaefnaneyslu þessa ald-
urshóps, voru lagðar fyrir og ræddar í
umræðuhópum. Tilgangurinn var að fá
fram sjónarmið unglinganna sjálfra og
hlusta á skoðanir þeirra og reynslu.
- Hvað vilja unglingar gera oftar
með fjölskyldum sínum?
- Hvað getaþeir sjálfir gert til að
stuðla aðfleiri samverustundum
innan fjölskyldunnar?
- Hvað er það sem hvetur börn og
unglinga til þátttöku í skipulögðu
íþrótta- og œskulýðsstarfi?
- Hver er ávinningurinn afþví að
drekka ekki áfengi á unglingsárum,
að þeirra mati?
- Hvaða stuðning telja þeir bestan í
þeim efnum?
Niðurstöður úr þessari verkefnavinnu
sýna, svo að ekki verður um villst, að
þessi mál eru unglingum hugleikin.
Unglingar hafa svo sannarlega skoðanir
og vilja að á þá sé hlustað. Tími með
fjölskyldunni og þátttaka í íþrótta- og
æskulýðsstarfi er mikilvægt í huga þeirra.
Ólafur Ragnar Grímsson, forseti
fslands, sagði m.a. í ávarpi sínu niður-
stöðurnar vera skýr skilaboð um það að
unglingar vildu eyða auknum tíma með
foreldrum sínum.
Inga Dóra Sigfúsdóttir, forseti kennslu-
fræði- og lýðheilsudeildar Háskólans í
Reykjavík, kynnti niðurstöður Forvarna-
dagsins. Hún sagði niðurstöðurnar skýr-
ar um að unglingar vildu verja meiri
tíma með foreldrum sínum.
Helga Guðrún Guðjónsdóttir, formað-
ur UMFÍ, sagði að umhyggja og hlýja
væru grundvöllur að góðum samskipt-
Frá málþinginu
sem fór fram í
íþróttamiðstöðinni
í Laugardal
3.apríl sl.
um. Ennfremur að unglingar væru
mjög meðvitaðir um gildi verkefnisins
í heild sinni. I ávarpi sínu kom Helga
Guðrún inn á Unglingalandsmótin sem
UMFÍ hefði staðið að undanfarin ár og
sagði hún þau vera samnefnara með
niðurstöðum skýrslunnar en þar myndu
foreldrar verja tímanum með börnum
sínum í heilbrigðu umhverfi. Helga
Guðrún hvatti þátttakendur málþings-
ins til að koma á Unglingalandsmót og
kynna sér hvað þar væri í boði.
Ólafur F. Magnússon, borgarstjóri í
Reykjavík, sagði í ávarpi sínu niðurstöð-
urnar afar áhugaverðar og gagnlegar og
hann ætlaði að kynna þær í borgarráði.
Ólafur Rafnsson, forseti ISÍ, Halldór
Halldórsson, formaður Sambands
íslenskra sveitarfélaga, og Margrét
Tómasdóttir, skátahöfðingi, voru öll
sammála um að niðurstöður skýrslunn-
ar væru afar áhugaverðar og skilaboð
um heilbrigt líferni.
SKINFAXI - tímarit Ungmennafélags fslands 5