Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.05.2008, Blaðsíða 44

Skinfaxi - 01.05.2008, Blaðsíða 44
FRÉTTIR ÚR HREYFINGUNNI Sunddeild Umf. Selfoss-Fyrirmyndardeild ÍSÍ Aðalfundur Umf. Selfoss var haldinn í Tíbrá fimmtudaginn 15. maí sl. Fundur- inn var fjölmcnnur og bar vönduð árs- skýrsla félagsins vott um rnjög öflugt starf á Selfossi. Tvær nýjar deildir voru formlega teknar inn í félagið, taekwondo- deild og mótokrossdeild. Við upphaf fundarins undirrituðu Þórir Haraldsson, formaður Umf. Selfoss, og Ragnheiður Hergeirsdóttir, bæjarstjóri Árborgar, nýjan þjónustusamning á milli ung- mennafélagsins og sveitarfélagsins. Einnig voru undirritaðir samningar um rekstur íþróttavallarsvæðisins og hand- boltaakademíu handknattleiksdeildar. I skýrslu formanns kom fram að starf félagsins hefur verið mjög öflugt á liðnu ári. Góður árangur hefur náðst á mörgum sviðum og starf deildanna hefur eflst, m.a. með stefnumótunarvinnu félagsins. Nýr þjónustusamningur, sem liggur fýrir, er stórt skref fram á við, með auknum fjár- framlögum og ýmsum vaxtarmöguleik- um. Þá stendur til að ráðast í framkvæmd- ir við íþróttavallarsvæðið við Engjaveg. Sunddeildin fékk afhenta viðurkenningu sem „Fyrirmyndardeild ÍSÍ“. Deildin fékk einnig styrk frá Sveitarfélaginu upp á 700.000 kr. ásamt 100.000 kr. styrk úr verkefnasjóði HSK. Á fundinum var lögð fram skýrsla frá Rækt ehf. þar sem fram kom stefna og markmið félagsins og deilda. íþróttamönnum deilda voru afhentar viðurkenningar og íþróttakarl og íþróttakona Umf. Selfoss 2007 fengu afhenta bikara. Sævar Þór Gíslason, knatt- spyrnumaður, var íþróttakarl ársins og Guðmundur Jóhannesson, for- maður sunddeildar Umf. Selfoss, tekur við viðurkenningu úr hendi Sigríðar Jónsdóttur, stjórn- armanns í ÍSÍ. Ágústa Tryggvadóttir, frjálsíþróttakona, íþróttakona ársins. Jóhannes Óli Kjart- ansson fék afhentan Björns Blöndal- bikarinn fyrir gott starf í þágu félagsins. Þá fékk fímleikadeildin UMFÍ-bikarinn fyrir gott starf á árinu 2007. Deildin hlaut m.a. útnefningu sem fyrirmyndar- deild ÍSl, fyrst félaga á Suðurlandi. Borgarflöt 15 :: 550 Sauóárkrókur Sími: 891 9181 :: Fax: 453 5778 Netfang: okgam@simnet.is 44 SKINFAXI - tímarit Ungmennafélags fslands

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.